- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
LXXX

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— LXXX —

Eyjardalsá, er verið hafði áður aðstoðarprestur afa hennar í
Laufási. Hann var þá ekkjumaður, hafði misst konu sína 1831.
Sagt var, að hann hefði þá viljað fá Þóru eigi miklu síðar, en
henni verið það á móti skapi. Mun hafa átt örðugt með að
gleyma þeim, sem hún unni: „Anda, sem unnast, fær aldregi
eilífð að skilið". En loks hafði hún látið til leiðast, að fara að
Eyjardalsá. — Allir, sem þekktu hana, sögðu, að ’hún væri hvers
manns hugljúfi. — Hún og Jónas munu ekki hafa sést, og það
var nú óvíst, hvort þau sæjust framar. „Svo hafa forlög fært
þeim dóm að höndum". Sunnudaginn 24. September sté hann á
skipsfjöl á Akureyri, og 13. Október gekk hann aftur á land í
Höfn (III. b., bls. 268).*)

I ævisögu Jónasar framan-við 2. útg. Ijóðmæla hans, er það
sagt, líklega eftir Páli Melsted, að Jónas hafi hneigzt á bessu
ferðalagi til að drekka meira en áður, og því verið nokkuð
breyttur, þegar hann kom aftur til Hafnar um haustið. Dagbók
hans frá ferðinni til Vestmannaeyja og dvöl hans þar, bendir þó
ekki til þess, og engar líkur eru til, að hann hafi „hneigzt til að
drekka" meðan hann dvaldi hjá séra Tómasi á Breiðabólstað eða
fór rannsóknarferðir um Rangárvallasýsluna eða dagana, sem
hann var á leið til Reykjavíkur. Að sönnu bendir ekki neitt á, nð
hann hafi drukkið áður, svo að hann þarf ekki að hafa hneigzt
mikið til að drekka, til þess, að það væri meira en áður,
bók-staflega tekið. Hann var í samsæti í Reykjavik hjá Krieger
stift-amtmanni með höfðingjunum bar og i nágrenninu, og sennilega
hefir hann þá oftar verið í vinahóp þar sem vín var haft um
hönd. Það er ekki kunnugt, að Jónas hafi áður forðast iiautn
áfengis, og er ekkert, sem bendir á, að hann hafi þá heldur gert
það við þessi tækifæri, en því síður bendir nokkuð á, að hann
hafi hneigzt til að drekka meðan hann dvaldi i Reykjavik og
framkvæmdi þar hitamælingar eða landslags- og
jarðfræðis-rannsóknir i nágrenninu. Og þegar hann ferðaðist þaðan austur
að Geysi og síðan þaðan upp að Kalmanstungu og svo norður
að Steinsstöðum, gengur ferðalagið allt svo greiðlega, að
ekkert bendir á, að nein tilhneigning til að drekka hafi orðið
honum að farartálma. Hann framkvæmir athuganir sinar á
Þing-völlum og við Geysi, og jafnvel að næturlagi á
Grimstungna-heiði, svo sem ekkert sé að, og skrifar ágætlega um þær,
sennilega að mestu leyti nokkurn veginn samstundis. Ekki er trúlegt
né liklegt, að hann hafi hneigzt fremur til áfengis-nautnar
;neð-an hann dvaldi með ástvinum sinum heima á Steinsstöðum eða

*) Um þessa sumarferö sbr. e. fr. Lanflfrs. IV., 4—5.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0092.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free