Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— cxx —
Skarðsheiði vestur í Hítardal (III. b., bls. 156—60). Þrýtur núi
dagbókin, en áfangaskráin, ýmsar athugasemdir um fornleifaiv
sendibréf, yfirlit yfir ferðalögin öll (III. b., bls. 275—-77) er til
leiðbeiningar um framhald ferðalagsins. í Hítardal athugaði
hann gamla steina með myndum og dró upp teikningar af þeim..
Næsta dag fór hann inn-að Hólmi og fram í Bjarnarhelli, gerði
lýsing af honum og dró upp gömul fangamörk og áletranir, sem
þar eru. Síðasta Júlí fór hann ofan að Hítarnesi og daginn eftir,.
sem var sunnudagur, að Staðarstað. Þar var séra Pétur
Péturs-son, síðar biskup, og varð nú fagnaðarfundur með þeim
vinun-um; var Jónas þar næstu tvo daga um kyrt. Fyrra daginn
skrif-aði hann Konráði gamansamt bréf og felldi inn í það kvæði o..
fl., en siðari daginn skrifaði hann Steenstrup aftur og mest um
silungategundir og aðra fiska (II. b., ’bls. 79—86). Síðan fór
hann út að Búðum og athugaði ölkeldur á leiðinni þann dag og
allan næsta dag og næstu nótt, fór í þeim erindum upp á
Fróðár-heiði m. a. og síðan næsta dag út að Hamrendum í Breiðuvík,
til séra Hannesar Jónssonar. — Frá Búðum sendi hann bréf sín
og náttúruminjar, ölkelduvatn o. fl. til Hafnar (II. ’b., "bls. 83—
86—7). ■— Næsta dag, 7. Ag., fór hann upp í Sönghelli og
skoð-aði hann, skrifaði þar upp nokkur gömul fangamörk o. fl. (III.
b., bls. 185—86), og hélt síðan áfram að Hólum. Hann skrifaði
einnig upp ýms örnefni í Breiðuvíkurþingum, sjálfsagt eftir
frá-sögn kunnugra manna, og liklega helzt séra Hannesar (III b.„
bls. 200—201), og dró upp nokkrar myndir; sumar af myndum
hans frá þessari ferð (sjá III. b.), þær sem hann hefir gefið sér
tíma til að vanda nokkuð, eru merkilega vel gerðar. Frá öðrum
ferðum hans en þessari og þeim, sem hann fór sumarið áður, eru
svo að segja engar myndir til, og hann virðist litið hafa fengizt,
við að draga upp. — Hinn 8. Ag. fór hann til Olafsvíkur og var
þar 2 daga um kyrt; ef til vill hefir hann þá skrifað þar eða á
Hólum það, sem er í fornleifaskýrslunni um fornminjar og
forn-ar sagnir hér um slóðir, III. b., bls. 186—89. Þá skrifaði hann
einnig Finni Magnússyni og sendi honum byrjunina af
forn-fræðaskýrslunni (II. b., bls. 87—8, m. aths.). 11. Ág. fór hann
inn að Krossnesi i Eyrarsveit. Er hann var að ríða heim að
Fróðá, kom honum visa á varir um Björn Breiðvikinga-kappa
og hinn breytta aldarhátt, og er hann vitjaði leiðis æskuvinar
sins, Jóns Kjærnesteds, í Fróðárkirkjugarði, kom honum til
hug-ar, að minnast hans með litlu ljóði (I. b., bls. 96). Hann kvað
5 fallegar ferskeytlur, og óvenju dýrar, þótt ekki væru þær me&
neinum rimnabraghætti. Í Krossnesi veiddi hann um kvöldið
silunga til að senda náttúrugripasafni háskólans. — Daginn
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>