- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXXI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXXI—

eftir fór hann inn að Bjarnarhöfn. Þar varð hann að vera um:
kyrt sökum stórrigningar 4 næstu daga. Þar var þá Sigfús
sýslumaður Skúlason, en illa stóð á til að taka á móti gestum og
varð Jónas að hýrast í tjaldi sínu, „Hrauki", þótt vont væri
veðrið, sbr. gamanbréf, sem hann skrifaði þá Konráði, II. b.,
bls. 89—90, m. aths., og bréf hans tii Steenstrups 17. s. m. (s.
st., bls. 94). 17. Ág. komst hann inn að Helgafelli og var þar um
kyrt næsta dag, nema hvað hann reið niður á Þingvelli, til nð
skoða hinn forna þingstað, og í Stykkishólm. Skrifaði hann nú
Steenstrup gott og greinilegt bréf þá daga, svaraði bréfum hans,
og gerði nokkra grein fyrir landslaginu á Snæfellsnesi í
jarð-fræðislegu tilliti o. fl. (II. b., bls. 92—97). E. fr. lauk ’hann
gamanbréfinu til Konráðs, sagði honum af trúlofun séra Péturs.
á Staðarstað, vinar þeirra, -— og að hann hefði gefið honum
Köru sina. Hann athugaði rústir o. fl. á hinum forna þingstað
Þórsnessbings á Þingvöllum og sögustaði, sem getið er í
Eyr-byggja-sögu. A Helgafelli var séra Jón Guðmundsson, bróðir
séra Þorgeirs, og á Þingvöllum séra Grímur Pálsson, en í
Stykk-ishólmi Arni kaupmaður Thorlacius. Fóru þeir nú allir og fleiri
með, alls 7 saman, um Helgafellssveit, til að athuga
sögustað-ina og ræða saman um þá með Jónasi; mun það hafa verið 20.
Ág. (sbr. bréf til Finns 2. Mai 1842, II. b., bls. 134), því að 19.
var rok og rigning, og Jónas fór ekki lengra áleiðis en að
Hof-stöðum þann daginn, enda mun hann þá hafa farið að rannsaka
þúst, sem hann hafði séð sumarið áður og álitið kunna að vera
haug Þórólfs Mostrar-skeggs, sbr. II. b., bls. 108, og III. b., bls.
190; en 20. fór hann um Helgafellssveit og allt inn að
Breiða-bólstað á Skógarströnd, kom við í Hrísum og slóst Jón
hrepp-stjóri Jonsson, sem þar bjó, með í förina. Athuguðu þeir
sérstak-lega hið forna bæjarstæði Þórólfs ’bægifótar, Hvamm, ieifarnar nf
haug og bæ Arnkels goða, sonar hans, á Bólstað við Álftafjörð
o. fl., sbr. fornleifaskýrslu Jónasar, III. b., bls. 189—93, og
uppdrátt á bls. 202. — Á Breiðabólstað var merkilegur legsteinn
frá 1681, sem hann hafði séð sumarið áður og rannsakaði nú að
nýju. Næsta dag fór hann inn að Skörðum í Miðdölum og
sunnu-daginn 22. yfir í Haukadal og allt fram að Skarði, fremsta
bæn-um, en daginn eftir fór hann norður yfir Haukadalsskarð og út
að Prestsbakka, og þaðan aftur inn á Borðeyri (sbr.
áfanga-skrána, III. b., bls. 207); í yfirlitinu yfir ferðalög sin, III. b.,
bls. 276, kveðst hann hafa farið allt út i Bitru, en bað er næsta
ólíklegt, að hann hafi komizt samdægurs inn að Borðeyri, ef hann.
hefði farið allt norður að Bitrufirði, jafnvel bó að hann hefði
skilið lestina eftir á Borðeyri, er hann fór út-eftir, og farið,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0133.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free