- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXXIX

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

- ■ CXXIX —

í bréfi sínu til fjármálastjórnarinnar 5. Nóv. (II. b., bls.
121), getur Jónas um væntanleg viðfangsefni sín á hinum
ný-byrjaða vetri: Náttúrufræðislegar rannsóknir, stofnun
náttúru-gripasafnsins og fiskveiðarannsóknirnar. Því miður verður nú
ekki séð af neinni dagbók eða skýrslu frá þessum vetri, svo sem
hinum síðast-liðna, hvaða náttúrufræðislegar rannsóknir hann
hefir einkum fengizt við. Um náttúrugripasafnið var nú rætt
nokkuð. Hefir hann sennilega fengizt nokkuð við það þennan
vetur, eftir því sem hann gat komið bví við. Sömuleiðis
fisk-veiðarannsóknirnar, en um þær rannsóknir er nú fátt kunnugt.
Hann hefir vafalaust fengið svör frá ýmsum, sem hann hafði
sent fyrirspurnir sinar veturinn áður, og skal gerð hér síðar
grein fyrir þeim svörum, en ástæða er að álíta, að þau hafi
verið helzti fá og árangurinn ófullkominn að þvi leyti.

En nú skal minnzt á þau viðfangsefni, sem mestu varðaði
um fyrir núlifandi kynslóð og bókmenntirnar, að hann lét ekki
undir höfuð leggjast, yrkisefnin og kvæðin. I I. b., bls. 98—113,
eru 10 ljóðmæli, sem vissa er fyrir eða miklar likur til, að hann
hafi ort þennan vetur og næsta vor, og í athugasemdum við
2 löng kvæði, sem eru á bls. 69—79, er sýnt fram á, að þau
muni einnig vera frá þessum sama tíma; sama gegnir um 7
út-lögð kvæði, 2 eftir Schiller, 1 eftir Addison og 4 eftir Heine
(bls. 202—11, 212—16, 219—21, 225—28), og tvenn erfiljóð, sem
hann hefir ort á dönsku (bls. 251—53). Ekki er ólíklegt, að enn
fleiri ljóðmæli, svo sem gamanvísur (t. a. m. á bls. 168—72) og
ef til vill fleira, muni einnig vera frá þessum siðasta vetri
Jón-asar i Reykjavik. Athugasemdirnar í I. b. við hvert þessara
ljóðmæla fyrir sig gera óþarft að ræða langt mál um bau hér
í þessu sambandi, enda er ekki tilgangurinn með þessu yfirliti
yfir ævi hans og störf, að kryfja ljóðmæli hans eða önnur
rit-störf til mergjar, hvorki fagurfræðislega né visindalega, heldur
reynt að benda á ýmislegt, sem verða kynni til skýringar og
léttis þeim, er það vilja fást við að meira eða minna leyti.

Jónas hafði áður ekki fengizt mikið við að yrkja eftirmæli,
en borið hafði hann það við, bæði af eigin, innri hvöt og eftir
ósk annara; en þetta umliðna sumar hafði hann ort þrenn, og
það ótilkvaddur, og þennan nýbyrjaða vetur orti hann
tiltölu-lega mörg eftirmæli. Á sumarferðinni, eða nokkru eftir að hann
var kominn aftur til Reykjavikur, frétti hann lát séra Stefáns
Pálssonar á Hofi og orti þá eftir hann merkileg eftirmæli (I. b.,
bls. 98—100); einkum eru 3. og 4. erindi snilldarleg, og það
ekki að eins að forminu til, heldur er sett hér fram
djarfmann-leg og spakleg lifskoðun með svo kjarnyrtri kenningu, að erind-

ülT J. HALLGR. V. 9

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0141.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free