- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXXXIX

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXXXIX —

En nú þurfti „mjög að mörgu hyggja". í inngangsorðunum
fyrir dagbók sinni frá sumarferðinni (III. b., bls. 208 o. s. frv.)
kveðst hann nú hafa hraðað þeim verkum, er hann þurfti að
koma af áður en ferðin hófst. Fékk hann 2 skölapilta sér til
að-stoðar þegar frá byrjun Júnímánaðar, þá Gunnar Hallgrímsson,
sem hafði fylgt honum sumarið áður, og Þorvald Böðvarsson,
son séra Böðvars Þorvaldssonar í Stafholti. Hann fór til
Hafn-arfjarðar og ef til vill upp að Hjörsey á Mýrum til að sækja
náttúrugripi (III. b., bls. 209 og 261—62), lauk við
brauðalýs-ingarnar í Austfirðingafjórðungi og Sunnlendingafjórðungi, og
fornleifaskýrslu sína frá ferðalögunum sumarið áður, o. fl.

Stjörnufræðin mun hafa komizt út áður en hann fór úr
Reykjavik, því að nokkuð hafði þegar komið af töflunum og
prentuninni i Viðey mun hafa verið lokið um likt leyti. Á
ein-takið, sem hann gaf Finni, skrifaði hann erindið, sem er á bls.
113 í I. b.; felst í því í senn fagurt lof og fögur ósk.

Hann lagði loks af stað föstudaginn 8. Júli, en liklega siðla
dags, og fór þá aðeins austur að sýslumörkum, og daginn eftir
að Reykjum í Olfusi. Dagbók hans frá ferðinni (í III. b., bls.
208—66) greinir ljóslega, hvernig hann ferðaðist og hvar hann
dvaldi hvern dag, svo að hér gerist óþarft að skýra frá þessari
ferð svo greinilega sem hinum fyrri; sbr. einnig yfirlit hans
yfir þessa ferð, III. b., bls. 277—78. — Hann fór að
Laugar-dælum næsta dag, sunnudag, og þaðan austur að Kálfholti
daginn eftir, og næsta dag að Odda. Sennilega hefir hann þá
kom-ið að Selalæk og hitt þar og kvatt í síðasta sinn æskuvininn sinn
frá skólaárunum á Bessastöðum, Gisla isleifsson (Einars); var
hann þar þá bóndi, svo sem áður var getið. Frá Odda fór Jónas
daginn eftir austur að Kollabæ i Fljótshlíð; þar bjó þá Eirikur
•sýslumaður Sverrisson. Jónas hafði haft svo annríkt áður en
hann lagði af stað í ferðalagið, að hann hafði ekki gefið sér
tíma til að svara bréfunum frá Höfn. Skrifaði hann nú frá
Kollabæ stutt bréf til Jóns Sigurðssonar, sem hann virðist
einnig hafa verið nýbúinn að fá bréf frá, og annað bréf skrifaði
hann til Finns Magnússonar (II. b., bls. 135—36). —
Sömuleið-is skrifaði hann frú Sigríði, ekkju séra Tómasar
Sæmundsson-ar;*) hún var nú á Flókastöðum, næsta bæ við Breiðabólstað,
með börnum sínum 2 ungum; er það bréf glatað, en svar hennar
til, i nr. 13 i abr. í hrs. Bmf. — Jónas fór síðan austur undir

*) Jónas virSist því ekki hafa komiö heim til frú Sigríðar
J)ennan dag, og ekki verður séð, aö hann hafi komiS austur i
FljótshlIS siSan sumariS 1837.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0151.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free