- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXLIX

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXLIX —

sér það í nyt, þegar voraði (sbr. II. b., bls. 143—44). Honum
leið ekki alls kostar vel i Höfn; styrkurinn, sem hann hafði frá
Bókmenntafélaginu, var ófullnægjandi.*) — Þar var haldinn
aðalfundur 18. Febr. og færði forseti þá fundarmönnum þau
gleðitíðindi, að vísindafélagið danska hefði lofað
Bókmennta-félaginu 500 dala styrk til íslandslýsingarinnar, og að
fjárhag-ur félagsins hefði batnað, sjóður þess aukizt um 200 dali.**)
Forseti stakk^ upp á, að Jóni Sigurðssyni yrði falið að semja
siðari hluta íslandslýsingar, og mælti enginn á móti því.***)
Konráð „skýrði frá, að hann hefði safnað til þeirrar bókar úr
nokkrum fornsögum Islendinga". -— Á þessum fundi var einnig
sambykkt að kaupa af Jónasi ferðabók Sveins læknis Pálssonar,
sama verði og hann hafði borgað fyrir hana, enda hafði hann
keypt hana handa félaginu (sbr. II. b., bls. 145, m. aths. og III.
b., bls. 263 og 266). Hann varð að skrifa forseta og biðja hann
3 dögum síðar að borga sér ferðabókina (8 rd. 72 sk.); honum
lá á peningum, en gjaldkerinn var ekki heima. Hann bætir við
þá bón þessum orðum, sem sýna betur fjárhagsástæður hans og
líðan en langar útlistanir: „Það er annars illt og ómaklegt, að
ég skuli, eins og þér getið nærri, verða með öllu móti að forðast
að koma til nokkurs manns — fyrir klæðleysi —, þó mér standi
hin beztu hús opin" (II. b., bls. 145). — Söfnin, sem Jónas hafði
sent ýmsa náttúrugripi á síðustu ferð sinni heima, endurgreiddu
honum að sjálfsögðu útlagðan kostnað; en allt hrökk þetta
skammt, var einungis rúmir 90 dalir. — I bréfinu til forseta
21. Febr. getur Jónas þess einnig, að þá sé „verið að lagfæra
kortið", þ. e. uppdrátt Islands, sem Bókmenntafélagið var þá
byrjað á að låta búa undir prentun.****) Vann Jónas mikið að því
að lagfæra hann og bæta á ýmsan hátt.*****) Var hann allra
manna færastur til þess og öldungis sjálfkjörinn, enda mátti
honum vera það jafnframt mjög mikið áhugamál, ekki sizt me3
tilliti til Islandslýsingarinnar, að uppdrátturinn yrði sem
full-komnastur og að honum yrði lokið sem fyrst. — Um vorið, 8.

*) Honum voru greiddir 100 dalir 1842 og 160 dalir 1843.

**) Sbr. ræSu forseta í Skýrslum og reikningum félagsins það
ár, bls. III—VII.

***) Sbr. sama rit næsta ár (og þó með sama ártali, 1843),
bls. VI. — Jóni voru greiddir 150 dalir þ. á., 1843, til að vinna a8
þessu máli.

****) Sbr. Skýrslur og reikninga 1843, bls. V.

*****) gbr ii b ; bjg i5o oß; i98 — í vörzlum
Bókmenntafélags-ins eru enn til frumuppdrættir Björns Gunnlaugssonar og mörg
prófblöð af ýmsum fjóröungum kortsins met5 leitSréttingum og
viðaukum Jónasar, bæöi nöfnum o. fl.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0161.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free