- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CL

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXL —

Apríl, sendi Jónas forseta Bókmenntafélagsins frumvarp til laga
fyrir það; var hann formaður laganefndarinnar, sem kosin
hafði verið á fundinum 22. Des. Um mánuði siðar, 6. Mai, var
aftur fundur i Bókmenntafélaginu og skýrði forseti þá frá
störfum Jónasar við fyrri hluta Islandslýsingarinnar. Hann og
lýsingarnefndin hafði þegar áður verið komin að raun um, að
Jónasi „yrði ómögulegt að leysa þann verka, er hans aðgjörða
þurfti við, tilhlýðilega af hendi fyr en um vordaga 1844", eins
og forseti orðaði það í ræðu sinni á ársfundinum 11. Febr.*) —
Þrem dögum eftir þennan vorfund í Bókmenntafélaginu sendi
Jónas fjármálastjórninni uppskriftina af dagbók sinni á
sumar-ferðinni 1842 til afnota fyrir Steenstrup; hann hafði látið gera
þessa uppskrift þegar um haustið, skömmu eftir komu sína til
Hafnar, eins og áður var getið, og stjórnin hafði 11. Febrúar
beðið hann að senda sér hana, en hann hafði dregið að senda
hana af þeim ástæðum, sem hann nefnir í bréfinu, er hann
sendi nú með henni (II. b., bls. 145—46). Mánuði síðar, 6. Júní,
sendi hann stjórninni ferðakostnaðarreikning sinn, og var hann
rúmum 200 dölum hærri en styrkurinn; fám dögum siðar, 10.
s. m., skýrði hann aftur frá, að sér hefðu þá þegar verið
greidd-ir nær 33 dalir af þeim mismun. Mæltist hann til, að sér yrði
bætt þetta upp á líkan hátt og árið áður, er ferðastyrkurinn
árið 1841 hafði reynzt of lítill. Hann tjáði stjórninni frá
fjár-hagsörðugleikum sinum jafnframt (II. b., bls. 146—48). Þá má
enn greinilegar sjá af bréfi, sem hann skrifaði um sama leyti
til Finns Magnússonar, forseta Bókmenntafélagsins (II. b.,
bls. 146).

Nú var senn komið fram undir Jónsmessu og allt var í
full-um blóma úti í Sórey. Steenstrup fór að lengja eftir Jónasi og
skrifaði honum að nýju. Jónas svaraði honum aftur 23. Júni,
þakkaði honum fyrir tilskrifið og bað hann ákveða nokkurn
veginn, hve nær hann ætti að koma út-eftir. Hann kvaðst
vera að bráðna í sumarhitanum inni í borginni, bví að nú væri
hann orðinn mjög feitur, en vænt þætti sér þó- ætíð um blessaða
birtuna og hitann. Honum var svo illt í þumalfingrinum á hægri
hendinni þessa dagana, að hann átti mjög örðugt með að
skrifa.**) Kom það sér að sjálfsögðu illa. Honum þykir verkið
sækjast seint fyrir sér; „det er ret en ulyksalig uoverkommelig
Masse, som jeg er nødt til at gennemrode; og saa den Ærgrelse,
at have selv skaffet sig den paa Halsen". Það var ekki auð-

*) Skýrslur og reikningar 1843, bls. VI.

**) Sbr. einnig II. b., bls. 152.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0162.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free