Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CLXXI—
„Það bráir af mér eftir sólstöðurnar, og þá er ég aftur til
i allt", hafði hann skrifað Jóni Sigurðssyni 15. Des.
Laugar-daginn 18. Jan. var hann tilbúinn að koma á Fjölnisfund hjá
Brynjólfi, þar sem Fjölnis-menn höfðu ætíð haft samkomur
sin-ar síSast-liðið ár. Las Brynjólfur þá upp ritgjörðina um
fisk-verkun (sjá II. b., bls. 292—304, m. aths.), síðan las hann upp
Formannsvísu(r), en Jónas las sjálfur upp kvæðið „Þorkell
þunni" og þýðinguna á kvæðinu „Quis multa gracilis" eftir
Horatius (sjá I. b., bls. 170—72 og 198—99, m. aths.), og enn
eitt, sem ekki er nefnt. Síðan voru 2 fundir í Febrúar, 8. og 15.,
en Jónas var á hvorugum og ekkert markvert gerðist. I
Bók-menntafélaginu var fundur 26. s. m. og er svo að sjá, að komið
hafi til orða, að Jónas gæfi þá skýrslu um, hvað liði
Islands-lýsingu, en af bréfi, sem hann skrifaði forseta félagsins sama
daginn og fundurinn var, má sjá, að hann gat þá ekki komið
því við, og e. fr. er líklegt, að hann hafi þá ekki komið á
fund-inn (sjá II. b., bls. 195—96, m. aths.). I Marz var enginn
Fjöln-is-fundur, en 6. dag þess mánaðar var loks almennur fundur
aftur. Jón Sigurðsson var kjörinn forseti, en Jónas var
fram-sögumaður í skólamálanefndinni, sem kjörin hafði verið á
síð-asta fundi, 28. Nóv., eins og áður var getið. Nefndin hafði
bætt þeim Konráði og Grimi Thomsen við sig. I stað bess að
tefja fundinn með langri skýrslu um nefndarstörfin og
skóla-málið i heild eða löngu nefndaráliti, hafði nefndin samið
bænar-skrá til alþingis um skólann, og las Jónas hana upp; e. fr. sagði
hann, „að nefndin hefði búið til frumvarp um, hvernig hún
vildi koma latínuskólanum fyrir", og las Jónas það upp einnig.
Kom mönnum saman um að safna undirskriftum undir
bænar-skrána og låta bera hana fram á þinginu. Þá voru kosnar 2
nýjar nefndir eftir uppástungu Jóns Sigurðssonar, önnur til að
semja bænarskrá um alþingi og hin til að semja bænarskrá um
verzlunarmálið; skyldu 3 kosnir i hvora, og var Jónas kosinn
i báðar. I April var enginn almennur fundur, en þá tókust upp
aftur Fjölnis-fundir og munu hafa verið haldnir 10.,*) 12. og
28. þess mánaðar, liklega allir hjá Konráði. A hinum fyrsta
þeirra las Brynjólfur upp „Fjallið Skjaldbreiður", e. :cr.
erind-in „Víti", „Fremri námar" og „Aldarháttur"; var fyrsta og
síðasta kvæðið frá 1841, en hin frá 1839 (sjá I. b., bls. 65—66
og 93—96, m. aths.), en ekkert nýtt kvæði kom Jónas með; var
hann á fundinum, og sömuleiðis á næsta fundi, 12. s. m., en þá
*) „15." I fundabókinni virðist vera ritvilla.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>