- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CLXXVI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CLXXVIII —

— „Elt svo hina! haltu
hugprúður til búða
Víkur. — Við þig leiki
völin á mölinni".

Jónas vissi, hvað orðið var; þingið var kvatt saman í
Reykjavik. Hann vissi það einnig vel, að það var ekki á móti vilja Jóns;
en það var þvert á móti hans eigin heitustu óskum, hans og
margra kærustu vina hans, lífs og liðinna. Þess vegna felst í
þessum síðustu erindum nöpur og um leið hæðniskennd ádeila,
sem vart hefir látið Jón ósnortinn.*)

Svo leið Apríl á enda, að enginn almennur fundur íslendinga
í Höfn var haldinn; voru nú nærri fullar 8 vikur siðan hinn
síð-asti hafði verið. En nú var Jón Sigurðsson á förum heim til
al-þingis sjálfur, aðalstoð þeirra og styrkur í þjóðmálabaráttunni.
Nú var kvatt til fundar, 1. Mai, og Jón kosinn forseti. Hann bað
menn nú velja menn í sinn stað í 2 nefndir, sem áttu að semja
bænarskrár til alþingis, og var það gert. En bænarskráin um
skólann var samin, og var nú gengið frá orðalagi hennar til
fullnustu.**) Þrem dögum siðar fór Jón af stað heim á leið og
til þings, 4. Mai; en 10 dögum síðar var haldinn almennur
fundur aftur, til að fjalla um aðra af þeim bænarskrám, er samin
skyldi og samin hafði nú verið, um verzlunarmálefnið. Hún
varð þó ekki útkljáð og mun nefndin, sem hafði málið með
hönd-um, hafa átt að ganga frá henni til fullnustu eftir fundinn.
Jón-asar er ekki getið við þessi fundahöld og er þvi óvist, hvort hann
hefir tekið þátt í þeim; sennilega hefir hann þó verið á fyrri
fundinum að minnsta kosti. En 3 dögum síðar, laugardaginn
17. Mai, var enn fundur, til þess að ganga frá þriðju
bænar-skránni, um alþingismálið. En nefndin, sem átti að sjá um
hana, hafði þá ekki mál sín á reiðum höndum; kom fram tillaga
um að veita henni enn nokkurn frest, en Jónas mælti á móti þvi,
óttaðist að svæfa ætti málið á þann hátt. Sannfærði
tillögumað-ur þá fundarmenn um, að það hefði ekki verið tilgangur sinn,
og var nefndinni veittur frestur. Fundargerðin er nú skemmd
af bruna, enda virðist hún að sumu leyti ekki hafa verið svo
greinileg frá hendi ritarans sem skyldi. Jónas hefir einn ritað
nafn sitt undir hana, auk ritara, svo sem forseti fundarins, en
af þvi, sem sagt er í henni, virðist hann þó ekki hafa verið það,

*) Um samsætiö og- heimferð Jóns sjá J. Sig. II., 301—4.

**) Jón bar hana fram og las hana upp á alþingi 5. Jölí, sbr.
Alþ.tlð., bls. 40 o. frv.; hún var dags. 2. Mai. Jónas var að
sjálf-sögí5u metSal þeirra 24, sem rituSu undir hana.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0188.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free