Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CLXXVII —
enda fór flest í ólestri. Tveim dögum síðar, 19. Mai, var svo
haldinn almennur fundur aftur, og voru 12 menn á fundi. Tók
Jónas nú málin föstum cökum. Var hann nú sjálfur
framsögu-maður alþingisnefndarinnar „og mælti fram með atriðum þeim,
er í bænarskránni voru, einkum alþingisstaðnum gamla". Forseti
var Magnús Eiríksson og leitaði hann nú atkvæðis um, hvar
al-þingi skyldi vera. Vildu 7 hafa það i Reykjavik, en 5 á
Þing-velli, auk Jónasar, Konráðs og Gisla Thorarensens þeir
Þorleif-ur Repp og Gunnlaugur Þórðarson, sem var einnig
Fjölnismað-ur; hann var bróðursonur Stefáns bæjarfógeta
Gunnlaugsson-ar. — Brynjólfur var ekki á íundinum, mun hafa verið veikur,
og Halldór Friðriksson, sem var Fjölnismaður, snerist i lið með
þeim, sem hafa vildu þingið í Reykjavik.*) — Síðan las Jónas
upp uppkast til bænarskrár um verzlunarmálið, „og var það
tekið með öllum atkvæðum".**) Ritaði Jónas síðan nafn sitt
undir fundargerðina ásamt Magnúsi og fundarskrifaranum.
Þannig lauk þessum undirbúningi islenzkra menntamanna
i Höfn undir fyrsta binghald hins endurreista alþingis.
Bænar-skrárnar í skólamálinu og verzlunarmálinu voru eins og Jónas
vildi hafa þær; bænarskráin i alþingismálinu mun nú ekki vera
til • hún virðist ekki hafa verið borin upp til sambykktar á
þess-um fundi, 19. Mai, heldur að eins eitt atriði i henni, og fellt með
tveggja atkvæða meiri hluta að hafa það svo sem það hefir
ver-ið í henni. Virðist Jónas þá ekki hafa látið bera hana upp cil
at-kvæða í heild, er svo var komið. Hún kom ekki aftur :cram á
þessum fundum, enda varð lítið úr þeim hér eftir. Efni þessarar
bænarskrár mun mega fara nærri um af ritgerð Brynjólfs í
Fjölni árið áður, VII., 110—36; sjá einkum bls. 133 og 135—36.
Nú voru tímamót i sjálfstæðisbaráttunni og mátti hér setja
merki við „götuna fram eítir veg". Alþingi var endurreist og
skyldi nú koma saman í nýrri og betri mynd eftir fáeinar vikur.
Skólahús var reist handa latínuskólanum, sömuleiðis í nýrri og
betri mynd. Verzlunarmálið var komið svo á veg, að vænta mátti
góðrar úrlausnar á því áður mjög langt um liði. — Þessi mál
voru aðal-áhugamál Jónasar, eins og fleiri þeirra, er báru hag
og framfarir þjóðarinnar fyrir brjósti.
*) Sbr. enn fremur Andv. XLV., 45, og J. Sig. I., 442.
**) Jón SigurSsson bar þessa bænarskrá fram og las hana upp
7. Júlí, sbr. Alþ.tíð., bls. 56 o. frv., en bænarskráin í alþingismálinu
kom ekki fram á þinginu. Jón vildi koma efni hennar at5 I ávarpi
til konungs, en tókst ekki fyrir mótþróa konungsfulltrúa; vartS úr
aS eins þakkarávarp. Sbr. Alþ.títS., 17, 24—25, 54—55 og 121.
RIT J. HALLGR. V.
12
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>