Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CLXXXVIII —
ar. Skildi hún þegar, við hverja höfundurinn átti í kvæðinu, og
henni duldist nú ekki, hve heitt hann hefði unnað sér, og að
hann hefði aldrei gleymt sér. Sáu menn, að hún varð nú mjög
harmþrungin, gekk út frá brúðkaupsveizlunni og leitaði
ein-veru. — Um hjúskaparlif hennar og heimilislíf skal hér ekki
rætt, en ekki mun það hafa verið allt eða ætíð „við glaum og
glys" né sem ánægjulegast. En enginn skuggi féll nokkru sinni
á hana. Hún naut virðingar og vináttu allra, sem kynntust
henni.*) Prófasturinn, eiginmaður hennar, sótti um Sauðanes
1847, og var honum veitt það; fluttu þau þangað vorið 1848 og
voru þar rúm 20 ár, unz séra Halldór Björnsson dó, 1869. Þau
hjónin áttu eina dóttur; hún hét Þórunn Sigríður; var fædd 10.
Okt. 1837 og gift Jóni Benediktssyni á Hólum í Hjaltadal 24.
Sept. 1859. Er frú Þóra Gunnarsdóttir varð ekkja, fór hún að
Hólum, til dóttur sinnar, og var þar það sem eftir var ævinnar.
Hún andaðist 9. Júní 1882,**) rúmlega 70 ára að aldri.
Á legstað Jónasar í Kaupmannahöfn hefir honum aldrei
verið reistur neinn minnisvarði. Á húsið, sem hann átti heima
í síðast þar í borginni, var sett minningartafla um hann árið
1928. Gekkst dönsk kona, cand. mag. Ingeborg Stemann, fyrir
því.***) Fyrir forgöngu íslenzku stúdentafélaganna í Höfn og
Reykjavik var skotið saman og veitt fé úr landssjóði til að reisa
Jónasi minnismerki í Reykjavik á aldarafmæli hans. Einar
Jonsson frá Galtafelli var fenginn til að gera líkneski af Jónasi; var
það steypt úr bronzi, sett á múrstöpul til bráðabirgða á túnblett
við Lækjargötu í Reykjavik og afhjúpað þar á aldarafmælinu
við hátíðlega minningarathöfn; ****) en síðar sama dag var
farin blysför til minnismerkisins og siðan höfð hátíðleg minn-
*) Séra Jón KonrátSsson å Mælifelli segir 1 Prestaæfum
sinum, aS hún hafi verið „væn og góShjörtuð kona".
**) Hún hvílir 1 Hóla-kirkjugartSi. — Engin mynd mun vera
til af henni. — Séra Einar prófastur Jonsson á Hofi sá hana á
Hól-um 1872, er hún var um sextugt; kvað hann hana hafa veriö
fylli-lega I meðallagi háa, en grannvaxna og holdskarpa; virtist hún hafa
veriS fríS sýnum. — Sbr. Iðunni, 1925, bls. 169—74. Er hér sumt
réttara en þar.
***) Taflan var gerS eftir uppdrætti, sem Arne Finsen
húsa-meistari bjó til. Á hana er letrað: Den islandske Digter Jónas
Hallgrimsson, født paa Gaarden Hraun i Øxnadal 16. November
1807, død i København 26. Maj 1845, havde her sin sidste Bolig.
***♦) Likneskið stendur enn á sama stað; er það mest fyrir þá
sök, að mörgum mislikar bessi mynd, bar á meðal listamanninum
sjálfum, aö ekki hefir veriS gengiS til fullnustu frå minnismerkinu,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>