Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 8 —
bálka saman; því fuglarnir eru að líkindum risnir af
hinum sama stoíni sem spendýrin og standa þannig
samsiða eins og tvær hríslur, runnar upp af einni
rót, þótt ekki séu þær jafnar að vegsemd né
marg-breytni.
B. Frá sköpulagi og eðli spendýranna.
Frá beinagrind spendýranna.
5.
Henni má skipta í þrjá hluti: höfuð, búk og útlimu..
1. Höfuðið (caput) er hinn æðsti partur á
dýrslegum likama, og einkum er það furðulega fagurt
og haglega skapað á hinum æðri dýrtegundum, og
svo er mikið um vert höfuðlögunina, að af henni má
marka allt eðli og lífernisháttu þeirra dýra, er
höfuð-in eiga, ef dýrfróður maður sér þau að eins. Er þa&
ekki að undra, þar sem skilningarvitin eru öll á
höfð-inu (að tilfinningunni fráskilinni) og sinakerfið, sem
að er andans verkfæri, hefir þar uppruna sinn í
heilan-um, en næringargögnin hefjast á þessum hluta
líkamans. Höfuðbeinunum má skipta í heilakúpu
og andliti. Heilakúpan (cranium) er ofan- og
aftan-til á höfðinu, og nær hún fram að augum. Hún er
sett saman úr mörgum beinum og smám, sem oft
eru vaxin saman, einkanlega í gömlum dýrum.
Heila-kúpan minnkar og kjálkarnir verða lengri að þvr
skapi, sem dýraættirnar verða manninum ólíkari
(ap-ar, vargar, jórturdýr, hvalir). Andlitið (facies) er
framan-á höfðinu. Má í því nefna kinnbeinin,
kjálk-ana, gómbeinið og nefbeinið. Kjálkarnir eru tvennir,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>