Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 9 —
efri kjálkar og neðri kjálkar. Efri kjálkarnir (maxillæ
superiores) eru fastir og óhræranlegir. Þeir ná ekki
saman, því dálítið bein, sem kalla mætti
millum-kjálkabein (os intermaxillare) situr að framan á
mill-um þeirra. Neðri kjálkarnir (maxillæ inferiores) leika
á völtum og eru þær ýmislega lagaðar, eítir því sem
eðli dýranna er margbreytt. Þegar munnurinn á
ein-ungis að ljúkast sundur og saman (á vörgunum t. a.
m.), snýr liðhnúturinn (processus condyloideus) á
kjálkunum þversum, og er hann þá mjór og liggur í
grópi á höfðinu. Þegar kjálkamir eiga mest að
bær-ast fram og aftur (t. a. m. á nagdýrunum, músum o.
s. frv.), er hann líka mjór, en snýr þá langseftir.
Þeg-ar þeir eiga að bærast töluvert til beggja hliða (á
jórturdýrunum, t. a. m. nauti), er hann að mestu
leyti flatur eða í-kúpuvaxinn; og þegar ekkert af þessu
á að vera öðru fremur (t. a. m. á öpunum), þá er
hann hnöttóttur. Gómbeinið (os palatinum) hvelfist
yfir munninn ofanverðan á millum efri kjálkanna.
Nef-beinið (os nasi) skýlir ilmfærunum og liggur það
fram-frá augunum millum kinnbeinanna.
Upphöfuðið og framhöfuðið eru hvort öðru
gagn-stæð, eins og áður var á vikið. Hið fyr-nefnda er
einkum ætlað andanum til þjónkunar, en hið
síðar-nefnda líkamanum. Af þessum tveim hlutum
höfuðs-ins má því marka, hvort hið æðra eður óæðra lífið
hafi yfirburð í skepnunni, sem höfuðið á, eftir því,
sem þeir bera mikið eður lítið hvor af öðrum.
2. í búknum eru hryggurinn, rifin og
bringubeinið. Hryggurinn er gjörður úr áföstum
liðum (hryggjarliðum, vertebris), og má honum skipta í
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>