Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 10 —
háls, framhrygg, spjaldhrygg eður
mjó-hrygg, mjaðmhrygg og rófu. Hálsliðirnir(uertebrœ
collares) eru 7 í öllum íslenzkum spendýrum*) og eru því
vanir að geta sveigzt meira en hrygguünn, einkum
sá hinn fremsti liður eður banakringlan (atlas).
Lið-irnir í framhryggnum (rifjaliðirnir, vertebrœ
dor-sales) eru ætíð jafnmargir rifjunum hvoru megin.
Rif-i n eru með tvennu móti, þau er liggja millum
hryggj-ar og bringubeins (aðalrif, costœ uerœ) og hin rifin
þar fyrir aftan (aukarif, costœ spuriœ), sem tengd eru
við þau hin fremri á brjóskteinum, framan- og
neðan-vert á síðunum. Bringubeinið (sternum) er sett
saman úr fáeinum smábeinum og er það mjótt í
flest-öllum spendýrum. **) Mjóhryggurinn (uertebrœ
lumba-res) er ýmist langur eða stuttur, og er liðugleiki
búks-ins að miklu leyti kominn undir sköpulagi hans.
Mjaðmhryggurinn (uertebrœ sacrales) er stuttur, og
liggur hann á millum mjaðmanna. Rófuliðimir
(uerte-bræ caudales) eru mjög svo ólíkir, bæði að tölu og
sköpulagi, og eftir þvi fer nytsemi rófunnar, svo að hún
stundum verður þýðingarlaus að kalla má, en aftur
stundum ómissandi, t. a. m. hvalsrófan, sem orðin er
að sporði og hið bezta sundfæri.***)
3. Öll spendýr hafa 4 útlimu, tvo framlimu (hendur,
hramma, lappir, fætur, hreifa eður bægsli) og tvo
*) Það er ekki utan ein spendýraætt, sem hefír meira en 7 hálsliðu;
eru það seindýrin (m. tardigrada) og hafa þau 9 hálsliði.
**) í flugmúsunum er bringubeinið breitt og með kambi, viðlika og
skipið i fuglunum; er það til þess, að vöðvarnir, sem bera vængina og
þurfa að vera slerkir og fyrirferöarmiklir, geti komizt fyrir á bringunni.
***) Sumar apategundir hafa rófuna til að halda sér meö og vefja
henni um limar trjánna.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>