Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
fyrir, því nóg hafa þeir að gera, að róa vængjunum.
Fiðrið á búknum er skjólgott, því fuglarnir verða að
vera úti í öllu, og ofan í kaupið ferðast í loftinu, en
þar er ætið ískalt, þegar hátt er komið. En þó er
eitt höfuðeinkenni í sköpulagi allra fugla, og miðar
líka til sama augnamiðs. Öll beinin (eða
fuglapipurn-ar) eru hol innan og merglaus. Það er auðvitað, að
á þessu verða þeir léitari en önnur dýr, sem eru
þeim jafnstór að vexti. En hér að auki eru göt á
beinunum og holur út undir skinnið, svo loftið streymir
alls staðar inn í þau. Fuglarnir anda því ekki
ein-ungis með lungunum, heldur, að kalla má, með
öll-um likamanum, og þetta eykur umrás blóðsins,
hreins-ar það og hitar, og eykur í þeim fjörið og lífsaflið.
Loksins má þess geta, að fuglarnir eiga allir egg,
sem þeir sitja á, annaðhvort móðirin eða bæði
hjón-in, og unga út með mikilli kostgæfni.
Fuglarnir eru alls staðar um jörðina og tegundir
þeirra fjarska-margar; menn hafa nú á dögum lýst
meir en 4000 tegunda. Til að átta sig í öllum
þess-urn fjölda, hafa dýrafræðingarnir skipt þeim í ýmsa
höfuðflokka, ættir og kynferði, eftir þvi, sem
sköpu-lag þeirra og lífernishættir bentu til. En hér gekk
það til eins og vant er, að sínum sýndist hvað, og
þess vegna er upp kominn mikill fjöldi af nöfnum,
sem sinn hefir um hvað, og ekki eru til annars en
trufla, einkum viðvaninga, og gjöra fuglafræðina
óað-gengilegri og örðugri en hún þyrfti að vera. Flestir
hafa samt nú á dögum komið sér saman um að
skipta öllum fuglunum í sjö höfuðflokka, sem ég hér
vil nefna. Það eru þá fyrst: klifrarar (scansores),
þá göngufuglar (ambulatores), þá gripfuglar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>