Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 58 —
(raptores), þá kl órarar eða haensnafuglar
(ra-sores, Linn. gallinœ), þá hlaupafuglar (cursores),
þá mýrfuglar (qrallatores), og sjöundi flokkurinn:
sundfuglar (natatores). Hvað mig snertir, vil ég
samt ekki gjöra neinn höfuðflokk úr
hlaupafuglun-um, því bæði eru þeir svo fáir, og hvað sköpulagið
snertir, er eins hægt að koma þeim undir
mýrfugl-ana, eins og svölunum undir gönguíuglana. En það
verð ég að sanna á öðrum stað.
Þetta var nú sagt um fuglana alla; en ég hafði
lofað að tala um islenzku tegundirnar af þessum
dýraflokk. Það getur samt, eins og þið sjáið, varla
orðið annað en yfirlit og lýsing eða athugasemdir
um einstaka kyn, sem eitthvað er merkilegt við, eða
ég held ykkur séu miður kunnug.
Fuglategundirnar á íslandi eru fáar, og þó fleiri
en menn skyldu búast við, svo norðarlega spm landið
liggur, og bætist fæð þeirra enn fremur upp af þeim
ógnargrúa, sem þar finnst af einstaklingunum í
sum-um tegundum, svo sem svartfugli, rjúpum, æðarfugli
og nokkrum öðrum. Fjöldi tegunda og einstaklinga
er hér, eins og alls staðar, kominn undir þvi, hvað
mikið finnst af þeim hlutum, sem þeim eru ætlaðir
til viðurværis. Þannig finnast fáar tegundir á íslandi
af fuglum, sem lifa á flugum og skorkvikindum; og
þeir, sem það gjöra, flytja sig allir á haustin, um það
leytið kvikindin fara að grafa sig í jörð eða deyja.
Sama er að segja um þá fugla, sem lifa á fræi og
smágrösum. Þeir fara allir burtu, nema
snjótittlingur-inn, sem unir sér við moðið og tínir punt og annað
fræ af stráum, sem ná upp úr fönninni. En fuglar,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>