Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 66 —
sumri. Hún getur fleytt sér á vatni, þó hún sé
fitjar-laus, en hættir sér þó sjaldan langt undan landi.
Önnur deild: Vöðufuglar (grallce).
A. Þríklóa.
I. Tjaldakyn (hæmatopus).
1 tegund: T j a 1 d u r (hæmatopus ostralegus);
auð-þekktur. Þeir eru sumir kyrrir á veturna og verða þá
flekkóttir, og fæturnir grána upp — því annars eru
þeir blóðrauðir.
II. Sanderlukyn (calidris).
1 tegund: Sanderla (calidris arenaria), litill
fugl, áþekkur sandlóu, og hefur íundizt i Grimseyr.
annars á sanderlan heima norðast i Noregi og
Vest-urálfunni.
B. Fjórklóa.
III. Vepjukyn (uanellus).
1 tegund: Vepja (uanellus cristatus), strandfugl,
nokkuð stærri en lóa, með toppi og dökkri kápu, og
slær grænni slikju á vængina. Hann er ütlendur,
en kemur þó stundum til Vestmannaeyja, og hefir, að
ég held, verið skotinn á Inn-nesjum fyrir sunnan.
IV. Spóakyn (numenius).
1. tegund: Spói (numenius phæopus). Er
al-þekktur, kemur i Apríl-mánaðar-lok, og fer aftur i
miðjum September.
2. tegund: Nefboginn spói (numenius
arqu-aia). Stærri en hinn. Kemur sjaldan til íslands; hefir
náðzt um hausttima við Reykjavik.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>