Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 87 —
velja þeir sér bústaði; allra þeirra sköpulag, svo sem
það er margbreytt, lýtur að hinu sama; og eins er
varið þeirri lítils háttar hagleiksfýsn og ýmiss konar
veiðitólum, sem eru meðsköpuð sumum
fiskitegund-um: angarnir áblágómunni*) og rafurhögg
ber-hryggjarins**) eru til einskis annars. Umbreyting
hita og kulda íær ekki heldur mikið á fiskana, bæði
vegna þess, að hún er minni niðr-í vatninu, sem þeir
lifa í, en hjá oss upp-í loftinu, en þó einkum hins,
að eðlilegur hiti fiskjarins er enginn að kalla, en
lík-ami þeirra hitnar allur og kólnar rétt eins og það er
í kringum þá. Einnig eru missiraskiptin miður ráðandi
ílutningum þeirra og tímgun heldur en spendýranna
og einkanlega fuglanna. Margar íiskitegundir hrygna
á veturna, en sildin fer á haustin til
útsuður-stranda Norðurálfunnar, til að leggja þar hrognum og
svilum. í norðurhöfunum fjölga lika fiskarnir
aðdáan-lega; þvi þó aö tegundirnar séu þar ekki svo
íjarska-margar, er fjöldi einstaklinganna i hverri tegund þeim
mun geysilegri, og hvergi nokkurs staðar er neitt í
haíinu, er komist í samjöfnuð við þau ógrynni síldar
og þorska, sem dregur á hverju ári fjölda af skipum
undir hinar norðlægu strendur.
Ástin fiskanna er köld eins og sjálfir þeir; hún
er ekkert annað en stundarþörf einstaklingsins. Það
eru ekki nema fáeinar tegundir, sem maka sig; af
öllum hinum fjöldanum vitja hvötu fiskarnir um egg-
*) Blágóman (lophlus piscatorius, Linn.) er sagt, að leggist fram í
djúp á hafsbotninn og ginni til sin sniáfiska á nokkurs konar öngum, sem
hún hefir á höfðinu, en þeir, líkast til, halda að séu ormar.
**) Berhryggurinn (gymnotus, Lacépéde) er hrökkálslegund, og
svo geysilega rafurmagnaður, að hann getur orðið hestum aö bana, og
ligg-ur hann í ám og stöðuvötnum um suðurhluta Vesturálfunnar.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>