- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
131

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— Í31 —

voru ákveðin. Nú er það, sem áður er á vikið, að
tímabil þessi verða stundum nokkrum mínútum lengri
eða skemmri en hér var sagt (auk þeirrar óreglu, er
stormar og hafrót fá af stað komið svo stundum
skiptir); en einmitt þessi óregla sannar enn fremur,
að tunglið ræður einkum sjávarföllum, því það breytir
og mjög mikið hraða sinum eftir afstöðu þess við
sól og jörð; og ef vér gefum nákvæmar gætur að
hvorumtveggja óreglum þessum, er svo þykja vera,
sjáum vér, að þeim ber nákvæmlega saman.

Þótt nú tunglið ráði mest sjávarföllum, ræður
það þeim ekki eitt saman. Ekki þarf annað en gefa
gætur að flóði og fjöru um nokkra mánuði til að
taka eftir því, að þau flóð, sem verða með nýju
tungli og fullu, eru ætíð meiri en hin, sem verða
þegar tungl er í þverstefnu (Kvadratur) milli fyrsta
og annars, og milli þriðja og fjórða kvartils, og má
af því sjá, að sólin ræður einnig nokkru. Ef vér
gefum nú enn fremur gaum að sjávarföllunum og
breyt-ingu þeirra, komumst vér einnig að raun um, að
sjávarföllin verða því meiri, sem jörð vor kemur nær
sólu eða tungli, og miðbaugsfjærð þeirra, eður
fjar-lægð suður og norður frá miðbaugi, má sér og
nokk-uð um þetta mál; aldrei verða því sjávarföll meiri
en þegar sól og tungl standast svo á um ný og nið,
að myrkva dregur á þau.

í höfum þeim, sem lokuð eru að mestu eða fullu
og öllu, svo sem er Eystra-salt, Miðjarðarhafið, hið
kaspiska haf og önnur fleiri, verður og að vísu vart
við sjávarföll, en allsjaldan eru þau þar jafn regluleg,
og aldrei jafn-mikil, eins og við strendur úthafsins;
mest verða sjávarföll á hafströndum um miðbik jarðar.

9*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0343.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free