Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 133 —
eftir sama hlutfalli og fjarlægð hlutanna eykst
marg-földuð með sjálfri sér, það er að skilja: þegar vér t.
a. m. ímyndum oss, að aðdráttaraflið í einhverri
til-tekinni fjarlægð sé á við 1, og vér tvöföldum
fjar-lægðina, þá er aðdráttaraflið þar ekki xh, heldur að
eins V2.2 eður 1I* hluti; aftur ef vér þreföldum
fjar-lægðina, er aðdráttaraflið lh.3 eður 1h hluti; ef vér
ferföldum fjarlægðina, er það V4.4 eður V16 hluti, o.
s. frv. Af þessu leiðir, að aðdráttarmagn tunglsins
verður mest á staðnum Z og minnst á staðnum N,
en á n og m verður það hér um bil eins og i miðju
jarðarinnar C. Væri nú jörðin öll föst í sér og
sam-kynja, myndi ekki mega á henni sjá mismun
aðdrátt-araflsins, þvi hver hluti hennar um sig gæti þá ekki
gengið úr skorðum, og aðdráttarmagnið myndi sýna
sig eins og það hrifi á eina saman miðju jarðarinnar
C, og drægi jafnt með henni allan hnöttinn, sem þar
er umhverfis. En nú er vatninu svo varið, að það er
mjög hvikult og hræranlegt; aðdráttarmagnið á
staðn-um Z og þar í kring má sér því svo mikið, að
vatn-ið dregst þar saman og hækkar frá miðju jarðar; þar
kemur flóð, er vér svo köllum.
Eins fer á staðnum N og á Z, að þar verður
flóð um sama leyti, þótt gagnstæður hlutur valdi,
þvi það er þurrnan aðdráttarmagnsins. Tunglið L
dregur meir að sér miðbik jarðarinnar og þá
jafn-framt allan hinn fasta jarðarhnött, heldur en vatnið
utan um hnöttinn á staðnum N, það er fjærst er
tunglinu. Miðja jarðarinnar C nálgast því tunglið meir
en staðurinn N á yfirborði sjávarins, það er með
öðr-um orðum: það er eins og hin fasta jörð þokist
burtu frá yfirborði vatnsins á staðnum N, svo vatnið
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>