Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 134 —
verður aftur úr og lyftir sér þar eður vex, svo þar
verður einnig flóð. Eins fer það, þótt flóðið
smá-minnki, á öllum þeim stöðum jarðarinnar, sem liggja
undir sama hádegisbaug, sem Z og N, eður þar, sem
tunglið er í hádegis- og miðnættis-stað. Allt annað
vatn umhverfis jörðina fjarlægir sig því minna miðju
hennar, sem það er fjær hádegisbaug; það er með
öðrum orðum: aðdráttaraflið lyftir því þeim mun
minna. Á stöðunum n og m ber tunglið við
sjón-deildarhring, og þar dregur tunglið vatnið að sér
með jafnmiklu afli og miðju jarðarinnar C;
aðdrátt-armagnið breytir því ekki í sjálfu sér sjávarhæðinni
á þeim stöðum; samt sem áður hlýtur hæð sjávarins
að breytast þar um sama leyti og sjórinn eykst á Z
og N; yfirborð sjávarins lækkar á n og m, því
mikill hluti vatnsmegnisins er orðinn eftir við N, og
jafnmikið er runnið til Z, svo yfirborð alls vatnsins
er nú búið að fá þá mynd, sem sjá er á
deplabaugn-um Z’ n’ N’ m’ (Fig. 1 b). Á stöðunum Z’ og N’ er
flóð, og á n’ og m’ er fjara.
Af þessu má það sjá án alls reiknings, að flóð
og fjara verður að koma tvisvar á hverju tímabili,
sem líður á milli þess, er tunglið kemur í
hádegis-stað, svo og, að flóð kemur alls staðar á jörðunni,
þar sem tunglið er í hádegis- og miðnættis-stað, og
fjara hlýtur að koma þar rúmum 6 stundum seinna,
þegar tunglið nemur við sjóndeildarhring, það er að
skilja: þegar það kemur upp og gengur undir.
Sama er að segja um sólina, og nú hefir verið
sagt um tunglið; þvi einu munar, að miklu minna
ber á aðdráttarmagni sólarinnar, þótt það raunar sé
miklu meira, af þvi fjarlægð hennar er svo afar-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>