- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
151

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 151 —

delphinapterus leucas. — Þá kemur andarnefjan, er Jónas
nefn-ir „heterodon Dalei" *) og telur til nefhvalakyns, og þann
kyn-stofn til sama flokks og alla þá kynstofna, er nú voru nefndir;
þessi kynstofn er nú, eins og áður var sagt, talinn af sumum
sérstök ætt, er greinist i 2 ættkvislir, en andarnefjan verður þá
að visu eina tegundin i annari ættkvislinni, er telzt til þeirrar
ættar hér við land. Sumir telja nú andhvali og búrhvali til sömu
ættar, nefhvalaættar, physeteridæ, og greina tannhvali i 2 flokka
eins og Jönas, en byggja flokkaskiptinguna á öðru. Jónas nefnir
kynið, er hann telur andarnefjuna til, réttilega nefhvalakyn, á
latinu „heterodon"; Bj. Sæm. nefnir ættkvislina andhvali, sem
«r gamalt nafn, og ættina andhvalaætt, á latinu hyperoodon og
hyperoodontidæ (bls. 342), og andarnefjuna hyperoodon
rostra-tus, og eins og áður var getið, nefnir hann svinhvali hina
ættkvislina af sömu ætt; eru það hinir eiginlegu nefhvalir,
meso-plodon, og ætlar Bj. Sæm., að sú tegund af þeim, sem orðið hefir
vart hér, sé mesoplodon bidens. — Þar næst nefnir Jönas sem
5. kynstofn af fyrra flokki tannhvalanna náhvalakyn, og
teg-undina náhvali. Bj. Sæm. nefnir ættkvislina þar á móti náhveli,
en tegundina náhval.

Til annars flokks tannfiskanna telur Jönas „búrakyn",
„physeter", og til þess kyns 5 tegundir. Fyrsta tegundin,
búr-hvalurinn („physeter macrocephalus"), er alkunnur, og
viður-kenndur undir þessum heitum, en hann er eina tegundin af
búra-kyni, sem álitin er nú að vera til hér við land. Um hinar
teg-undirnar, sem Jönas nefnir, er það að segja, að
rauðkembingur-inn er eins konar kynjadýr, sem nefndur er í Konungs-skuggsjá
(sjá bls. 112—13 í inng., í útg. 1920) og riti Jóns lærða (sjá
Islandica, XV., bls. 35), og íslenzkum þjóðsögum, og eru engar
líkur til, að í sögunum um hann hafi upprunalega verið átt við
nokkra hvaltegund; hnýðingar hafa margir þeir hvalir verið
nefndir, er teljast til höfrungaættar, 2., 3. og 4. ættkvíslar, og
Bj. Sæm. nefnir svo eina tegund af höfrungum, sem Jönas
nefnir ekki (delphinus albirostris), en enginn nefhvalur, hvorki af
andhvalaætt né búrhvalaætt, virðist hafa verið kallaður
hnýð-ingur. Á fyrri öldum virðist grindhvalurinn (globicephalus
me-las) hafa verið nefndur hnýðingur (sbr. Kon.-skuggs., útg. 1920,
bls. 107 í inng.). Óljóst er, hversu stendur á latínska nafninu
hjá Jönasi á þessari tegund, er hann nefnir hnýðing, enda er
það að sumu leyti ögreinilega skammstafað. — „Ph. catodon"

*) Svo skal rlta (og heföi átt a8 prenta); hün er kennd viC
■dýrafræSing, sem hét Dale.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0363.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free