Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
trjáviður segirhann sé sjaldgæfur; um hafísinn talar hann
einnig, og segir að hann sé steinharður, en geti þó brunnið.
Það getur vel verið, að Reginpreht þessi hafi komið
til Íslands, og hefir kvæðishöfundurinn hent á lopti
eitthvað af þvi, sem hann hefir sagt frá ferðum sinum; eins
og K. Maurer bendir á, [1] sýnast frásagnirnar um trjáviðinn
og um hafísinn vera vottur þess, að Reginpreht hafi
vitað dálítið meira um Ísland en almenningur; sagnirnar
um ísbrunann á Íslandi taka sig upp aptur og aptur upp
frá því. Kvæðishöfundurinn getur þess líka, að sól sjáist
aldrei á Íslandi, og á þessi sögn líklega rót sína að rekja
til frásagna Solinusar um Thule, að þar sé 6 mánaða
löng nótt.
Vígsluferð Ísleifs biskups varð meðal annars til þess,
að fræðimenn í útlöndum fengu nokkra þekkingu á Íslandi.
Þegar Ísleifur Gissurarson var fimmtugur, var
hann valinn til biskups af allri alþýðu á Íslandi; fór hann
síðan utan og suður til Saxlands, sótti heim Hinrik keisara
3.; fór síðan á fund páfa, því þá hefir það enn verið
óráðið, undir hvern biskupsstól ætti að telja Ísland;
páfinn sendi Ísleif með bréfum sínum til Aðalberts
erkibiskups í Bremen, og var hann vígður þar 1056. [2]
Erkibiskup tók Ísleifi mæta vel; hefir honum eflaust þótt gaman
að heyra sagt frá svo fjarlægu landi eins og Íslandi, og
hann lofaði jafnvel að koma til Íslands, þó ekkert yrði
úr því. Nokkru seinna kom prestur nokkur, Adam að
nafni, í þjónustu erkibiskupsins; hann var lærður vel og
var gerður að forstöðumanni skólanna í Bremen; var það
tigið embætti, og var Adam í miklum metum hjá
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>