- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / II. /
306

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

306

stúderað í Túbingen. Annars er ræðan öll eintómt lof um

r

Friðrik fimmta, fyrir velgjörðir hans Islandi til handa.
Sein-ast í ræðunni þakkar Páll Vídalín rektor háskólans í Leipzig
fyrir, að hann hafi heiðrað samsæti þeirra með nærveru
sinni.

Um miðja 18. öld dvöldu þrir íslendingar í
Kaupmanna-höfn, sem mikið hafa ritað, Jón Þorkelsson (1697—1759),
Jón Ólafsson frá Grunnavik (1705—1779) og Jón
Marteins-son (1711—1771), og koma þeir allir töluvert við þetta rit.
Þessir fræðimenn hafa allir ritað margt, af ýmsu tagi, og
snerta sum rit þeirra landfræði Islands. Jón Þorkelsson er
tþessu efni fremstur, þvi hann vann töluvert að því, að
út-breiða betri þekkingu um Island á Norðurlöndum. Jón
Ólafs-son var mjög fjölfróður, og hefir ritað dálitið um
náttúru-fræði Islands, sem er einkennilegt og athugavert, og 1
rit-gjörðum hans er margur sögulegur fróðleikur fólginn, sem
vér opt höfum haft not af við þetta ritsmíði. Það sem Jón
Marteinsson hefir ritað, er reyndar langómerkilegast, en rit
hans koma einnig víóa við, og má ýmislegt af þeim læra,
ef þau eru notuð með varúð, og ^því munum vér einnig
minnast hans stuttlega.

Jón porkelsson (Thorchillius) var fæddur 1697 í
Gull-bringusýslu1, hann var sonur Þorkels Jónssonar í Njarðvik

r

(f 1707) og Ljótunnar Sigurðardóttur, Arnasonar lögmanns,
og var af ætt Odds og Guðbrands biskupa; hann sigldi til
háskólans í Kaupmannahöfn 1718 og stundaði þar málfræði
og guðfræði; siðan fór hann til Jótlands og Holsetalands og
dvaldi eitt ár við háskólann í Kiel, og fékkst þar einkum við
heimspeki og sögu; snöggva ferð fór hann til Islands 1720,
en dvaldi annars jafnan erlendis, þangað til hann varð
skóla-meistari í Skálholti 1728; þvi embætti þjónaði Jón í 9 ár,
með miklum dugnaði og kostgæfni. Þunglyndi og geðveiki
sótti mjög á hann á þeim árum, einkum á sumrum, er hann
eigi þurfti að gegna skólastörfum, voru svo mikil brögð að
þunglyndi þessu, að hann reyndi til að fyrirfara sér; 1731 kom

Kallar sig þessvegna opt >Chrysorinus«.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/2/0318.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free