- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
49

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

49

eptir því, að hann dvaldi miklu lengur við jökla en þeir
Eggert og Bjarni.

Eins og vér höfum getið hér að framan voru hugmyndir
manna um myndun jarðar og uppruna fjalla enn á mjög lágu
stigi um miðja 18. öld og var því engin von á því að þeir
Eggert væru í þeirri grein framar en allir aðrir, en þó hafa
þeir gjört margar góðar athuganir, er að jarðfræði lúta,
jarð-fræðislýsing þeirra er mjög mikil framför frá því er áður var,
þó henni sé að mörgu ábótavant; það er ekki hægt að mæla
hinar almennu hugleiðingar manna um jarðfræði á þeim
tím-um með mælikvarða nútímans. Ollum fjöllum á Islandi
skiptir Eggert í »regluleg« og »ói egluleg«; hin reglulegu eru
eins og múrar með 20—40 stöllum eöa hamralögum, það eru
elztu fjöll landsins: hin óreglulegu eru samsett af samhrúguðu
grjóti og leir, og auðsjáanlega mynduð af eldi, sum eru úr
hrauni og vikri, svört eða rauð, sum eru hvít og hafa hverar
auðsjáanlega verkað á þau: sum af fjöllum þessum eru svo
ung, að þau hafa myndast siðan land byggðist. í^ó þessi
skipting sýnist myrk og undarleg, þá liggja þó réttar
athug-anir til grundvallar, reglulegu fjöllin eru blágrýtisfjöll,
óreglu-legu fjöllin móbergs og þussabergsfjöll, undir þann flokk
telur Eggert hin hvitu líparitfjöll og heldur að þau séu optast
mynduð af hverum; það er nú reyndar satt, að víða er líparítið
sundursoðið af hveragufum, en Eggert gat ekki greint að það
væri sérstök bergtegund, sem ekki var heldur von á þeim
tíma. Eggert segir að óregluleg fjöll (móberg) séu allstaðar
undir jöklum og er það rétt hvað miðbik landsins snertir
viðast hvar, en á Vestfjörðum liggja jöklar á reglulegum
blá-grýtislögum.

Það kemur eintómum ruglingi á hinar einstöku
jarð-fræðislýsingar, að Eggert eins og aðrir samtiðarmenn hans
getur ekki gjört réttan greinarmun á vatnagrjóti og gosgrjóti.
Um halla blágrýtislaganna talar Eggert á fáeinum stöðum,
en hefir, þó kynlegt sé, ekki fundiö neina reglu í hallanum
og liggur það þó opið fyrir þeim, sem horfa á fjöllin,
eink-um á Vestfjörðum. Milli blágrýtislaganna finnur Eggert hin
rauðu lög, sem hann kallar »kólorstein« og segir að menn

4

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0057.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free