- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
77

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

77

háskólans í Höfn og bjó á Garði saman við annan færeyskan
fræðimann, sem hét I. C. Svabo (1746—1824), og höfðu þeir
báðir mikinn hug á að kynna sér náttúru og þjóðlíf Færeyja.
Á árunum 1776—1778 ferðaðist N. Mohr um Færeyjar með
stjórnarstyrk og safnaði miklum föngum til landlýsingar
Fær-eyja, sem honum þó eigi entist aldur til að fullgjöra, en
nokkuð af efni því, er hann safnaði, notaði Svabo síðar; þeir
söfnuðu og báðir allmiklum drögum til færeyskrar orðabókar.

f r

Arið 1780 var Mohr sendur til Islands og kom aptur um
haustið 1781, árið 1786 fór hann með Lövenörn á
rannsókn-arferð t.il Grænlands til þess að leita að Austurbyggð og 1787
varð Mohr umsjónarmaður (kontrollör) við
postulinsverksmiðj-una i Höfn og dó þar 4. febrúar 1790.

r r

A ferðinni til Islands var Mohr fyrst og fremst
fyrir-skipað að leita að postulínsjörð, en hann átti einnig að
at-huga allt það í náttúrunni, sem að verklegum notum mátti
verða, og safna fáséðum náttúrugripum. Sérstaklega átti hann
að rannsaka nytsama málma, steina og leirtegundir og safna
og athuga jurlir sem fágætar voru eður hentugar til
mann-eldis, skepnufóðurs, lækninga og litunar, einnig- átti hann að
skoða þarategundir og sædýr og siðan rita skýrslu um þetta
allt i vísindalegu formi.1 Mohr framkvæmdi það, sem honum
var á hendur falið vel og dyggilega og ritaði um náttúru
Islands betur og nákvæmar en við mátti búast og krafizt
hafði verið.

Nieolai Mohr fór frá Höfn 24. júní 1780 og tók land á
Skagaströnd 7. ágúst; brá honum í brún er hann sté á land
um mitt sumar, að sjá skafla undir börðum rétt við fjöruna.

r

A hinni fyrstu smáferð, sem Mohr fór þar um nágrennið,
kom hann í sel nokkurt og fékk nýmjólk að drekka úr trogi
með fjöðurstaf og grasagraut að eta. Hinn 14. ágúst fór
Mohr frá Skagaströnd landveg til Reykjarfjarðar og lýsir ýmsu,
sem fyrir hann bar á ferðinni. Sézt vel af ferðasögu hans
hve ástandið var bágborið í þá daga í smáu og stóru. Fróð-

’) Olavius: Oeconomisk Reise. formáli bls. 194—196. Lovsamling
for Island IV, bls. 529—530.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0085.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free