- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
99

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

99

orðið eptir á tslandi þegar hinir nefndarmennirnir sigldu.
Eyjólfur fékk þá vonarbréf fyrir Staðarstað er síra Jón
Magnús-son (1715—1796) dæi eða segði af sér, og var ákveðið að þar
á Staðarstað skyldi reisa hús til athugunar og íbúðar og
Eyjólfur átti auk preststekjanna að hafa 80 dali í laun; þó
átti hann að halda aðstoðarmann og kenna honum
undir-stöðuatriðin í stjörnufræði. Um leið og þessar ákvarðanir voru
gjörðar (21. mai 1772) fékk Eyjólfur nýtt erindisbréf með
svipuðu efni einsog hið fyrra, þar var honum meðal annars
boðið að skrifast á við stjörnufræðiskennara háskólans og
visindafélagið og fara eptir fyrirmælum þeirra hvað athuganir
snerti; hann átti enníremur að senda afskript af athuganabók
sinni til vísindafélagsins, en sýna stiptamtmanni frumrilið
ár-lega á alþingi. Stiptamtmaður átti að afhenda • Evjólfi hin
stærri verkfæri, en að því er snerti smáverkfæri og bækur
átti hann að snúa sér til vísindafélagsins.1 Ur ákvörðunum
þessum og fvrirætlunum varð þó lítið og aldrei varð neitt af
húsbyggingu á Staðarstað. Thodal stiptamtmaður skrifaði
stjórninni næsta ár (6. maí 1773) og tjáir henni að Eyjólfur
hafi optast verið veikur og stingur um leið upp á þvi að
at-hugunarstaðurinn sé settur nærri Bessastöðum, þar sé
fólks-fleira og hægra að hafa eptirlit, en hins vegar muni Eyjólfur
sakir heilsuleysis varla vera fær um að þjóna prestsembætti.2
Stjórnin féllst á þessa uppástungu og getur þess, að líklega
mundi heppilegast að nota turninn á Bessastaðakirkju, sem
þá átti að fara að byggja, fyrir stjörnuturn, ekki varð þó af
þessu sakir kostnaðar. Eyjólfi var nú veitt ókevpis ábúð á
Lambhúsum og vonarbréfið fyrir Staðarstað var kallað aptur,
en ákveðið að laun stjörnumeistarans hækkuðu úr 80 dölum
upp í 100 dali frá þeim degi er Staðarstaður yrði laus(!).3
Ekki hafði Eyjólfur þó nein not af þessu kostaboði
stjórnar-innar, 20 ’dala launahækkunina fékk hann aldrei, því hann

’) Lovsamling for Istand III, bls. 768—773. Vatnsíjarðaiannáll
yngri hdrs. J. S. nr. 39, fol.

’) Lovsamling for Island IV, bls. 12—13.
») Lovsamling for Istand IV, bls. 99—101, 102.

7*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0107.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free