Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
125
ritgjörða þeirra um almenna náttúrufræði, sem prentaðar voru
i Félagsritunum. en fvrir aldamótin kom líka út sérstök bók með
almennu yfirliti yfir náttúrufræðina handa alþýðu. Bók þessa,
sem hét »Sá guðlega þenkjandi náttúruskoðari*1 hafði sira Jón
Jónsson prestur til Grundar og Möðruvalla í Evjafirði (1759—
1846) lesið saman og þýtt úr ritum Suhm’s. I kveri þessu kennir
margra grasa, þar er stuttlega farið yfir alla náttúruna og
heimspekilegum og guðfræðislegum hugleiðingum blandað
saman við, en ekkert er þar um Island.2 Dálitið var þó ritað
um landfræði Islands þó það kæmi ekki út á prent. I
hand-ritasafni Bókmenntafélagsins3 er t. d. nafnlaust rit með
staöa-lýsingum ýmsra héraða á Islandi, skrifað 1776; þar er fyrst um
firði á Vesturlandi allnákvæmt, þá um kirkjusóknir á
Norður-landi og eru þar talin mörg örnefni jafnvel ásmádölum; þar
er og allitarleg lýsing á Grímsey og talað um Kolbeinsey og
svo taldir firðir og byggðarlög á Austfjörðutn.
Ennþá skrifuðu sumir ritgjörðir utn náttúru Islands í 17.
aldar stil og má til þeirra telja rit sira Snorra Bjamarsonar
á Húsafelli (1710—1803) »Stutt ágrip um ísiands náttúrugæði«.4
Síra Snorri var einsog kunnugt er rímnaskáld mikið, forn i
skapi og talinn göldróttur. Rit þetta er mest um dýr á Is-
landi fiska, hvali og fugla og er endurbætt og umbreytt út-
t
gáfa af riti Jóns lærða »um Islands aðskiljanlegu náttúrur«
með mörgum viðaukum, pn sumstaðar, einkum fremst, tekin
orðrétt frásögn Jóns. Þar er talað um grös, er nota megi á
x) Sá guðlega þenkjandi náttúruskoðari, það er hugleiðing yfir
bygg-ingu heimsins eður handaverk guðs á himni og jörðu ásamt annari
hugteiðingu um dygðina. Útdregnar úr ritsöfnum kammerherra og
kon-unglegs sagnaskrifara Pjeturs Frideriks Suhm’s og á íslendsku útlagðar
af Jóni Jónssyni sóknarpresti til Grundar og Möðruvalla í Eyjafirði.
LeirárgörðurA við Leirá 1798-8° (XVI + 152 blsA Tileinkað Stefáni
amtmanni þórarinssyni. sem var frumkvöðull að þvðiugu ritsins.
’) 1 hdrs. J. S. nr. 41-4° er rit »um veröldina*. stutt
landaskip-unarfræði um heimsálfurnar. sem síra Erlendur Guðmundsson á Hofteigi
hefir lagt út úr »Gotthilf Werners Geographiens Kjærnec. Kbhavn 1753.
3) Hdrs. Bókmf. í Kmh. nr. 80-8".
*) Hdrs. Bókmf. í Kmh. nr. 142-8° með hendi Jóns Bjarnarsonar í
þórormstungu. Hdrs. J. S. nr. 246-4°.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>