Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
133
matarlyst 1 það sinn. B.jarni landlæknir var aptur hjá þeim
að heimboði suður í Hafnarfirði, og þág af þeim að skilnaði,
meðal annars, dýrindis stækkunargler, hvörs líki hér ekki
hafði sést*.1 Eg set hér kafla úr annál sira Magnúsar
Péturs-sonar á Höskuldsstöðum um ferðina, sem í allri sinni
ein-feldni gefur góða hugmynd um hvað almenningur talaði um
þessa hina fyrstu útlendu höfðingja, sem komu hér til lands:
»1772 í Augusto kom á Hafnarfjörð engelskt skip ei allstórt,
með fallstykkjum og vörnum búið, var sagt um 40 manna á
því. Voru þar á herramenn praktugir að klæóum, allri
við-höfn og siðferði, fengu þau dönsku hús eður búðir til
aðset-urs, héldu stór gestaboð með mörgum réttum og drykkjum,
buðu þar til amtmönnum og æðri mönnum. Enga
kaup-höndlan höfðu þeir, né liðu við landsfólkið, en mælt var að
skenkingar hefðu farið millum þeirra og æðri manna. Þessir
höfðu uppteiknað og afmálað hvað þeir sáu. Nokkrir af þeim
reistu austur að Heldufjalli og í Skálholt, gjörðu skenkingar
meira fólki, og þeim öðrum, er þeim þénuðu. Amtmann Olafur
sendi þeirra vegna mann norður i Skagafjörð eptir
surtar-brandi, hrafntinnu, glerhöllum og til Hóla eptir nýþrykktum
bókum. Þeir sögðu sig siglt hafa kringum alla veröld og hefðu
nú fullkomnað þá sina lystireisu, vildu nú halda heim. Þetta
skip sigldi burt um veturnætur«.2 Dr. Solander safnaði
tölu-veróu af íslenzkum plöntum á þessari ferð og gjörði skrá yfir
þær, sem þó aldrei hefir verið prentuð. Hið íslenzka
plöntu-safn Solanders og skrá þessi er ennþá geymd í þjóósafni
Breta.3
Uno von Troil ritaði síðan bók um ísland og er hún að
mörgu fró⪚4 hún er samsett af eintómum bréfum, sem Uno
Sveinn Pálsson: Æfi Bjarna Pálssonar. Leirárgörðum 1800, bls..
72—78. Vno von Troil: Bref rörande en resa til Island. bls. 85.
2) Annáll sira Magnúsar Péturssonar á Höskuldsstöðum. Hdrs..
Bókmf. í Kmh. nr. 149-4°. Sbr. Vatnsfjarðarannáll yngri. Hdrs. J. S.
nr. 39. fol.
3) C. C. Babington: A revision of the flora of Iceland (Linnean
Sociely’s Journal. Botany, Vol. XI).
4) Uno von Troil: Bref rörande en resa til Island 1772. Upsala
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>