- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
136

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

136

einnig vestur á Snæfellsnes og gengu í land hjá Stapa og
klifruðu siðan upp á Snæfellsjökul, Mr. Wright hefir lýst þeirri
ferð;1 þeir skoðuóu og teiknuðu stuðlabergshellana hjá Stapa
og mældu hæð Snæfellsjökuls og tókst það vel.
Englending-urinn John Barrow fékk siðar dagbækur þeirra til umráða og
hefir prentað kafla úr þeim um Snæfellsnes i lerðabók sinni
til íslands.2 Ekki voru þeir Stanley jafn vel látnir á Islandi
einsog Joseph Banks og hefir mönnum legið heldur illa orð

r ..

til þeirra.3 A Orfarsey hlóðu þeir Georg konungi 3ja og
sjálfum sér minnisvarða og settu þar kopartöflu með nöfnum
sínum og var henni síðan stolið.4 Ekki gáfu þeir Stanley út
neitt samanhangandi rit um ferðina, en Stanley ritaði tvö bréf
til Dr. Jos. Black’s um hverina hjá Reykjum og um Gevsi ug
voru þau prentuð. Bréf þessi eru vel skrifuð og í þeim

r

margar góðar athuganir. I fyrra bréfinu segir Stanley fyrst
frá ferðinni austur yfir Hellisheiði og lýsir heiðinni og talar
um hraunbreiðurnar þar, en ekki sá hann gígi þá, sem hraunin

Fjallgöngu þessari hefi eg stuttlega lýst i Andvara XVII. Ferð
um Snæfellsnes bls. 83—84.

2) Jolm Barroiv jun.: A visit to Iceland by way of Tronyem in
the >Flower of Yarrow« Yacht, in the summer of 1834. London
1835-8vo. bls. 259-275.

3) 1 ritinu >Útgarðaloki«, hdrs. J. S. nr. 414-4°, stendur þessi klausa,
sem reyndar er mjög ótrúleg: >Árið 1789 gekk Stanley með
fylgjur-um sínum upp á Heklu, eptir hverjum höfð er ýmisleg lokalvgi,
eins og þeir tíðum prettuðu fólk á sviknum peningum úr blýi og
mess-ingi og settu kong Georg III. styttu í Örfarsey með fleiru, ólikir enum
fyrri« (Banks og Solander). í bréfi frá Magnúsi Ormssyni til Sveins
Pálssonar dags. Kesi 16. oktober 1789 stendur: >í>ann engelska Stanley
og hans förunauta höfum við haft hér í sumar, þeir reistu í Skálholt,
hvar þeir komu að nýafstöðnu begravelse biskups herra Finns. þaðan
til Geiser og Heklu. Reykjahvera og annarsstaðar. Húsbóndi minn fékk
þá æru. að þeir borðuðu þar til middags bændafæðu. súrt smjör og fisk,
skyr og graut etc. eptir ósk þeirra. Víðast þóttu þeir ei of örlátir í
útlátum sínurn, þó fengu sumir góðan betaling fyrir sitt, Guðmunde
Guðmundssyne fyrrum presti gáfu þeir 18 Cronur danskar. Ærustyttu
létu þeir uppmúra sér í Örfarsey*. (Hdrs. Bókmf. í Kmh. nr. 7 fol.).
það var fágætara í þá daga en nú að enskir auðmenn gerðu
skemmti-ferðir til íslands, og þótti því merkilegt.

4) Minnisverð tiðindi III, bls. 241—242.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0144.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free