Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
137
eru runnin ur. Þótti honum útsjónin yfir Ölfus og dalinn
upp að Reykjakoti mjog fögur í samanburði við auðnirnar á
heiðinni. Stanley lýsir hverunum hjá Reykjum mjög itarlega,
enda voru hverirnir þá mjög vatnsmiklir og ákafir því
jarð-skjálftarnir miklu (i júni 1789) voru þá nýlega afstaðnir. I
hliðum Hellisheiðar skoðaði Stanley bergtegundirnar og undrast
mest þussabergið, sem honum þykir kynlega samsett; segir
hann að hvergi sjáist regluleg lög í íslenzkum fjöllum og allt
virðist umsnúið frá grunni. Litli Gevsir gaus þá 20—30 fet
og Baðstofuhver nærri eins hátt og var hann enn vatnsmeiri,
eptir mælingu þeirra gaus Litli-Geysir þá 2313 pottum af
vatni á mínútu hverri. Baine mældi þá einnig hnattstöðu
Reykja og fannst hún vera 64° 4’ 38" n. br. Ekki skoðuðu
þeir alla hverina, en lýsa þvi vel er þeir sáu.1 I hinu
bréf-inu lýsir Stanley hverunum hjá Haukadal; byrjar með að lýsa
landslagi þar í kring og er mjög hrifinn af útsjóninni frá
fjalls-hlíðunum niður yfir Tungurnar og Suðurlandsundirlendið.
Hann segir líka frá viðtökum í Haukadai, þar bjó þá rík ekkja
og var þeim fyrst boðið inn í kirkju, en siðan i bæinn og
fengu þar góðar veitingar meðal annars te úr rjúpnalaufi. Um
Islendinga segir hann að þeir séu seinir til og í fyrstu þurrir
á manninn, en þegar búið sé að yfirvinna hina meðfæddu
devfð þeirra og afskiptaleysi verði þeir bóngóðir og
greið-viknir. Mr. Baine mældi hæð Laugafells hjá Geysi og ákvað
hana 310 fet yfir ána. Stanley lýsir bergtegundinni i fjalli
þessu2 og heldur hún sé ekki gosgrjót, en umbreytt af eldi.
Strokkur var þá nýfarinn að gjósa, hann byrjaði i júní 1789
við jarðskjálftana, og gaus hann nú töluvert hærra en Geysir,
hæsta gos Strokks, sem þeir mældu, var 132 fet á hæð, en
Geysir komst ekki hærra en 96 fet; Strokkur þevtti steinum
sem í hann var kastað léttilega i háa lopt, Baine mældi að
einn steinn komst 129 fet í lopt upp, en sumir fóru hærra.
An account of the hot springs near Rykum in Iceland: In a
letter to Dr. Black from John Thomas Stanley. Dags. 15. ágúst 1791,
lesið í félaginu 7. nóv. s. á. (Transactions of the royal society of
Edin-hurgh. Vol. III. Part 2, bls. 127-137-4°).
’) Bergtegund þessi er líparit.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>