- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
224

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

224

Stapa. en þar gátu þeir ekkert séð fvrir illviðrum og þoku

og sneru svo aptur. Barrow getur í formálanum hins helzta,

sem ritað hafði verið um ísland og telur meðal annars ferða-

hók Eggerls Olafssonar fulla af bábvljum og leiðinlega. Nú

skvldu menn ætla að Barrow bætti einhverju sjálfur við þekk-

inguna úr þvi hann gjörir svo lítið úr fyrirrennurum sinum,

en því fer fjarri, bókin er fremur ómerkileg, efnið er því nær

allt tekið úr eldri bókum og fáu nýju bætt við nema þeirri

t

merkilegu athugun, aó margar kindur á Islandi séu ferhyrndar
og svartar að framan. en hvítar að aptan! I ferðasögu Barrows
eru langir kaflar úr dagbókum Sir Stanley’s, sem fvrr hefir
verið getið, kaflar þessir höfðu ekki áður verið prentaðir og
eru þeir því nær hið eina sem gefur bókinni gildi. Barrow
hitti Friörik VII. i Revkjavík og lýsir honum nokkuð. Friðrik
prins hafði með miklum kostnaði látið safna steinum og
öðr-gripum handa söfnum í Kaupmannahöfn. Smith skipseigandi
hélt Friðriki veizlu og líkuðu konungssyni veitingarnar svo
vel, að hann gaf þeim Barrow allt er þeir vildu hafa af
nátt-úrugripunum og meðal annars gaf hann Smith ágætlega
fag-urt og ógurlega stórt stvkki af hrafntinnu, sem með mikilli
fyrirhöfn og ærnum kostnaði hafði verið flutt á hestum norðan
frá Mývatni,

r f

Arið 1820 kom ágætur þýzkur náttúrufræðingur til
Is-lands er hét Thienemann og með honum nemandi einn ungur
er Gúnther hét og voru þeir báðir læknar, hinn síðar nefndi
hefir þó mér vitanlega ekkert ritað um ferðina, en
Thiene-mann ritaði langa ferðasögu.1 F. A. L. Thienemann2 og G.
B. Giinther lögðu á stað frá Leipzig 8. júni 1820, héldu beina

’) Reise im Norden Europa’s vorziiglich in Island in den Jahren
1820 bis 1821 angestellt von F. A. L. Thienemann und G. B. Giinther.
beschrieben von ersteren. Leipzig 1827-8vo (XIV -f 410 bls.). Bókinni
fylgir landsuppdráttur og 4 litmyndir, sem þó ekki hafa heppnast vel.

*) Friederich August Ludwig Thienemann var fæddur í Gleina an
der Unstrut 25. des. 1793. hann stundaði náttúruvísindi og læknisfræði
við háskólann í Leipzig, varð 1825 umsjónarmaður við hið konunglega
náttúrugripasafn í Dresden og bókavörður konungs 1839. Th. sagði af
sér embættinu 1842 sakir veikinda og dó 24. júní 1858. Thienemann

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0232.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free