- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / III. /
226

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

226

og var þó vistarveran þar æði iéleg, því húsið var mjög
forn-fálegt og snjóaði víða inn um rifur; þó undu þeir vel hag
sínum og bera. Grímseyingum vel söguna. Vorið var þá hart
og lagðist hafis að eynni, en á honum komu selir margir og
var þaó góður fengur fyrir evjarskeggja, því þeir náðu eitt
sinn 360 selum, í annað sinn 60, og opt nokkrum i senn. I
Grímsey klifu þeir Thienemann björg og kletta, höfðu
mikinn feng af fugli og eggjum og urðu margs áskynja um
lifnaðarhætti fuglanna; voru þeir nú sem jafnan mjög
starf-samir og töldu ekkert ómak eptir sér, ef þeir áttu von á að
geta aukið þekkinguna. Þegar ís rak aptur frá Grimsey,
not-uðu þeir félagar tækifærið og sneru aptur til Eyjafjarðar og
voru mjög vel ánægðir með árangur ferðarinnar. Lýsing
Thienemann’s á Grímsey og fuglalífinu þar er mjög fróðleg.
Hinn 23. júní héldu þeir Thienemann austur að Mývatni og
athuguðu þar fugla og jurtagróður kringum vatnið og á
eyj-unum, síðan fóru þeir aptur út á Húsavík og svo austur á
land, fóru fyrst um Axarfjörð og svo frá Skinnastöðum upp
að Grímsstöðum, þá Dimmafjallgarð i Vopnafjörð og þaóan
um Smjörvatnsheiði og Hérað suður á Eskifjörð og svo um

r

Breiðdal á Berufjörð. A Djúpavogi dvöldu þeir félagar um
tima1 og fóru svo sunnanlands um Skaptafellssýslur til Reykja-

r

vikur; lýsa þeir ferðinni stuttlega en greinilega. A leiðinni
komu þeir við í Vík hjá Sveini Pálssyni, gengu upp á Heklu
29. ágúst og skoðuðu Geysi og Strokk; tii Revkjavíkur komu
þeir hinn 5. september og dvöldu þar til þess 21. s. m., þá
sigldu þeir með skipi úr Hafnarfirói. I Reykjavík hittu þeir
félagar Fr. Faber fuglafræðing, sem ferðaðist um ísland í
sömu erindagjörðum. Þó ferðalög um Island væri harðsótt
i þá daga, ekki sízt um þau héruð. er þeir félagar fóru yfir,
og þó þeir opt hefóu vosbúð og illt viðurværi, þá segist
Thienemann þó telja ár það, er hann dvaldi á Islandi, hió
skemmtilegasta á æfi sinni.

Verzlunarstjórinn, sem þá var á Djúpavogi hét Jonathan, hann
var »mestize«, kynblendingur af Indíána og Európumanni, var
giptur íslenzkri konu og áttu þau saman alhvít börn (bls. 295 — 96).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:37 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/3/0234.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free