Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
88
uppdráttur af íslandi (mælikvarði 1: 1,920,000); það er hinn
fyrsti uppdráttur af því tagi og eðlilega mjög ófullkominn,
því þá þekktu jarðfræðingar aðeins lítið af landinu, allir
höfðu farið sömu vegi um byggðir nærri ströndu, en ekkert
var rannsakað af bálendi og útkjálkum og er það allt megin
landsins. Eiginlega nær uppdráttur PaijkulTs aðeins yfir
suðvesturhorn landsins og svo strandræmuna fyrir sunnan
jökla; i öðrum héruðum landsins eru jarðmvndanir eigi
greind-ar í sundur, en aðeins settir fáeinir líparítblettir. Á
suð-vesturhorninu er gerð aðgreining móbergs, hrauna og sanda
og þó eigi fullkomlega. Uppdráttur þessi getur ekki einu
sinni gefið nærri nægilegt yfirlit yfir aðalbergtegundir
lands-ins, en það er þó allrar virðingar vert, að Paijkull réðist í
að setja á einn uppdrátt það, sem menn þá vissu um
út-breiðslu bergtegunda á Islandi, uppdrátturinn sýnir að minnsta
kosti hvað lítið menn vissu1. A kortinu sjnir höf. isrákuð
hraun hjá Reykjavík og Oki, og var hann hinn fyrsti, er tók
eptir þeim. Paijkull hvetur hina dönsku stjórn til þess aö
að láta rannsaka jarðfræði Islands á sama hátt og gjört er i
öðrum löndum, en litið hefir orðið úr því, sem kunnugt er.
I riti Paijkull’s er fvrst yfirlit vfir sögu jarðfræðisrannsókna á
Islandi, þá lýsir hann stuttlega iandslagi og færir svo rök
fvrir því, að landið hafi áður verið hulið jöklum, talar um
jökulöldur, ísrákir, dali og firði, sem hann ætlar að
skriðjökl-ar hafi myndað, lysir jökulhlaupum og hnullungaásum
(rull-stensásar) og reynir að skýra myndun þeirra. Pá segir höf.
frá bergtegundum á Islandi og getur um þær bergtegundir,
er menn ætluðu elztar (diabas, gabbro), talar um eldfjöll og
sprungustefnur, um hraun og hveri. Síðan lýsir Paijkull
do-leríthraunum þeim, er hann hefir séð, áður höfðu sumir
jarð-fræöingar haldið, að þau væru ein hin elzta myndun
lands-ins, en höf. sýndi að þau voru tiltölulega mjög ung,
sum-staðar með hraunskán á yfirborði, en þó fægö og rákuð af
’) C. W. Paijkull lýsir jarMræðisuppdrætti sinum og getur nokkuð
um jarðfræði íslands i Neues Jahrbuch fiir Alineralogie 1868. bls.
58-61.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>