- Project Runeberg -  Landfræðissaga Íslands / IV. /
89

(1892-1904) [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

89

jöklum, og er þelta aðaluppgötvun hans í jarðfræði Islands;
getur hann þess að hraunin muni hafa runnið á ísöld. Pk
telur Paijkull hinar einstökugathuganir, er hann gjörði á
ferð-um sínum og er þar ýms nytsamur fróðleikur innanum.
Paijkull telur upp liparit-staði og surtarbrands-lög, hvar þau
hafi fundizt á Islandi og lýsir sumum, er hann sjálfur hefir
séð, ennfremur telur höf. skeljar frá Hallbjarnarstaðakambi
og öðrum skeljabökkum og svo hefir hann rannsakað
efna-samsetningu 5 bergtegunda1.

r

A árunum 1872—74- ferðaðist Kristian Kaálund2 um

Island, víðar en nokkur maður annar útlendur á 19.

öld eptir að þeir Frisak og Scheel hurfu frá. Kaalund hefir

sem kunnugt er samið stóra bók um Island3 í tveim bind-

um. og er það aðalrit, ómissandi fyrir alla þá, sem vilja leita

t

upplýsinga um landfræði Islands, einkum að þvi er
staðalýs-ingu snertir; sérstaklega er bókin fjársjóður fyrir þá, er vilja
kynna sér söguöldina og svæði þau, er viðburðirnir gerðust
á. Hinn 27. septembermán. 1872 fór Kaalund frá
Kaup-mannahöfn og kom til Reykjavikur 11. október og var það
aðaltilgangur ferðarinnar, að skoða og rannsaka sögustaói um

’) Paijkull hefir líka ritað alþýðlega bók, sem heitir >Istiden
Norden. Stockholm 1867«. þar er getið um jökulhlaup og jökulmenjar
á íslandi (bls. 16—22).

s) Peter Erasmus Kristian Kaalund er fæddur 19. ágúst 1844 í
Söllested paa Laaland; liann útskrifaðist frá hinum lærða skóla í
Her-lufsholm 1863. varð cand. mag. í norrænni málfræði 1869. ferðaðist á
íslandi 1872-74, og varð dr. phil. 1879. Arin 1875—83 var Kr.
Kaa-lund kennari við Metropolitanskólann í Kaupmannahöfn. en hefir síðan
verið bókavörður við handritasafn Árna Magnússonar. sem geymt er í
háskólabókhlöðu i Kmhöfn. Dr. Kaalund hefir samið: Familielivet paa
Island i den förste Sagaperiode (Aarb. f. nord Oldk. 1870, bls. 269—
381), Islands Fortidslevninger (Aarb. f. nord. Oldk. 1882) og um
kúl-túrsögu Islands í fornöld i »H. Paul’s Grundriss d. german. Philologie«;
hann hefir samið skrár yfir handrilasafn Árna Magnússonar og ísl.
handrit í konungsbókhloðu og gefið út, Fljótsdælu hina meiri 1883 og
Laxdælu 1889—91.

3) P. E. Kristian Kalund; Bidrag til en historisk-topografisk
Be-skrivelse af Island. I — II. ’ Kjöbenhavn 1877—1882, 8° (638 +
527 bls.).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 14:45:46 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/landfraed/4/0101.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free