Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
250
líklega er það eina útgáfan, sem út kom 1604. Þar er á bls.
98—101 bréf frá Guðbrandi biskupi Porlákssyni til Johannes
Stamichius prests við Jakobskirkju í Hamborg og á bls. 105—
109 annað bréf frá Gísla Jónssyni biskupi í Skálholti til
Johannes Hennichius1) lika prests við Jakobskirkju í
Ham-borg. Bæði bréfin eru um kennslubækur í hebresku eptir
Elias Hutter, sem hefir viljað láta snúa bókum þessum á
islenzku, en biskuparnir færast undan og telja þaó óráð að
prenta slíkar bækur á islenzku. þar eð því nær engir
Islend-ingar fáist vió hebresku og þeir. sem gjörðu það. mundu þá
eins geta notað útlendar bækur. Elias Hutter var, að því er
Dr. Aug. Gebhardt segir, guófræðiskennari við háskólann í
Leipzig og prentari i Núrnberg: hann gaf út bréfasafn þetta
til þess að víðfrægja kennslubækur sínar með umsögnum
ýmsra lærðra manna. Um Guðbrand Porláksson og Arngrím
lærða eru allmörg bréf og skýrslur i handritasöfnuin í
Kaup-mannahöfn og ýmislegt einkennilegt er snertir æfi Arngrims
Jónssonar má sjá í bréfabók Porláks Skúlasonar (Lbs. 175
fol.) Þess má ennfremur geta, að útlegging af »Crymogæa«
Arngrims er i »Purchas his Pilgrimes« London 1625, fol., III.,
bls. 654—668. í sömu bók bls. 644 er uppdráttur af Islandi
tekinn eptir Hondius, en auösjáanlega hefir kort Guöbrandar
biskups verið fyrirmyndin.
1., bls. 244. Greinin um Island, sem stendur i bókinni
»Rudimentum Noviciorum« 1475, er í raun og veru miklu
eldri; hún er orðrétt i skinnhandriti, sem gevmt er i Bern
og samið hefir verió einhvern tima milli 1200 og 1350.
Handrit þetla hefir Wilh. Wackernagel gefið út í M. Haupt’s
Zeitschrift fiir deutsches Alterthum Bd. IV. Leipzig 1844.
bls. 479—495. Hin sama lýsing litið stytt, en annars þvinær
orðrétt, er til í handriti frá 16. öld í Chigi-bókasafninu í Róm
og er prentað í Ymer XII., 1892, bls. 39—43. í handritinu
frá Bern er einnig sagt frá því, að Finnar selji vind. >Þeir
J) Ætli Stamichius og Hennichius séu eigi sami maður; prentvilla
eða ritvilla?
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>