- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
100

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

100

Flóai- og iiröir á Norðurlancli.

vík og Bjarnarfjörður og mörg sker og boðar fram meö
lancli. Bjarnarfjörður er grunnur og fjarar töluvert út úr
honum og er dálitið undirlendi upp af firðinum. Milli
Bjarn-arfjarðar og Steingrimsfjarðar gengur fram nes, sem er mila
á breidd, þar er Bæjarfell og Grimsey fyrir utan.
Stein-grimsfjörður er langmesti fjörðurinn á Ströndum, hann
er 372 mila á lengd og 3/4 úr milu á breidd að framan.
haim gengur fyrst til’ vesturs, en mjókkar svo og beygist
til norðvesturs, en insta totan stefnir hérumbil i hávestur.
Fjöllin eru fremur lág, að minsta kosti i samanburði við þau
sem norðar eru. og jarðlögin hallast á báða vegu niður að
firðinum. sem verður eins og trog, dýptamælingar sýna, að
fjarðarbotninn skiftist i tvö trog eða hvilftir, i hinni innri er
dvptin mest 32 faðmar, en fyrir utan þenna innri, mjórri hluta
fjarðarins er hjá Kálfanesi hryggur með. 17 faðma dýpi,
siðan verður fjörðurinn bæði breiðari og dýpri, 50—60
faðmar, og út af Gautshamri á Selströnd jatnvel 100
faðm-ar, siðan grynkar aftur og fyrir austan Grimsey er hryggur
i fjarðarmynni. en áll í miðju yfir hann (40—50 f-). I
Steingrímsfirði eru viða skipalægi, en þar er enginn fastur
verzlunarstaður. Fyrir sunnan Steingrimsfjörð gengur inn
Kollafjörður til suðvesturs, hann er mila á lengd og fullur
af skerjum austur af honum er Ennishöfði og rúmri milu
sunnar skerst inn Bitruf j örður, beint á móti Gilsfirði,
hann er 1 A/a míla á lengd; þar er skipalægi fyrir innan
Ospakseyri Fjarðarbotninn hallast jafnt út á við (8—33 f.),
en frá Guðlaugshöfða sunnan við fjörðinn gengur hryggur
neðansævar og við enda hans er fjarðarállinn aðeins il —14
faðmar.

Inn á milli Guðlaugshöfða og Bálkastaðaness skerst
Hrútafjörður langt inn i landið, hann er 5 milur á lengd,
nærri míla á breidd i mynni, en örmjór hið innra. Fjöllin
beggja megin fjarðarins eru lág, aðlíðandi hálsar (800—10’MJ
fet) öldumyndaðir, en gróður er þar töluverður í fjöllunum;
land er hér tilbreytingarlaust og sviplítið. Hrútafjörður er
alldjúpur að utanverðu (18 —24 f) en fyrir innan
Prests-bakka er skerjótt og grynnra. Yið Hrútafjörð er verzlunar-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0114.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free