Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Skagi.
101
staðurinn Borðeyri að vestanverðu og við tvær aðrar e^^rar
sama megin (Kjörseyri og Skipevri) eru lika skipalægi. Bál
ka-staðanes (eða Heggstaðanes) gengur fram vestan við
Hrúta-fjörð og skilur hann frá Miðfirði, nesið er mjótt og lágt og
á þvi öldumyndaðir hálsar með mýraslökkum. Miðfjörður
er rúmlega l1/^ mila á lengd og gengur til suðurs, hann er
djúpur og fjarðarbotninn jafnt afliðandi út á við (30—60 f.).
en hryggur gengur út frá Bálkastaðanesi, og utan til við
hann i Miðfjarðarálnum er aðeins 43 faðma dýpi. Austan við
Miðfjörð gengur Vatnsnes langt út i Húnaflóa, það er hár
og fjöllóttur skagi, vestan við hann og fyrir norðan er fjöldi
af skerjum og boðum, enda eru þar á ströndinni viðast
hamrar og klungur og hrjóstrugt land; austan við Vatnsnes
eru lika sker og stapar upp úr sjó og er Hvitserkur
milli Súluvalla og Osa þeirra merkastur. Húnafjörður er
opinn og breiður fjörður, sem gengur upp að
Pingeyra-sandi, hann er 2 milur á Jbreidd og l1/^ mila á lengd, 19
—45 faðma djúpur og hallast jafnt út frá landi, hann hefir
áður, um lok isaldar, verið 3 milum lengri og hefir þá náð
upp i Viðidal og Vatnsdal, hafa þá i honum hið efra verið
alldjúpir pollar t.d. þar sem Vesturhópsvatn nú er. Vestan
við fjörðinn er verzlunarstaðurinn Blönduós, þar er engin
höfn, en aðeins opið skipalægi.
Ut á milli Húnaflóa og Skagafjarðar gengur mikið nes,
sem einu nafni er kallað Skagi, það er 2—4 milur á breidd
og nærri 7 mílur á lengd. Nes þetta er að útliti og
bygg-ingu ólikt öðrum nesjum á Norðurlandi, efri hlutinn er
fjöllóttur en nyrðri hlutinn flatlendur og lágur, þar er
mó-berg og móhella i björgum fram með sjó, en grágrjti hið
efra. Fram með ströndinni er bygð landræma alt i kring,
en óbygðar heiðar upp i landi. Vesturströndin fram með
Húnaflóa er kölluð Skagaströnd, þar er
Höfðakaup-staður við blágrýtishöfða dálitinn og Hólanes litlu innar.
Xorðvestast á Skaga er Rifsnes og Skalli, þar eru
grynn-ingar út af, rif og sker; norðan á Skaga er Digrimúli og
Asbúðir og austast Skagatá; inn með ströndu að
aust-anverðu eru Ketubjörg, þar fyrir sunnan er Selvík og
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>