- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
148

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

142

Yfirborðsmyndanir. 148

rokið lielir smátt og smátt rifið sér djúpar rásir gegnimi
grassvörðinn, sem vikka og lengjast i hverju sandveðri,
þangað til búið er að flysja allan grassvörð ofan af hrauni
þvi, sem undir er, og sjást þá eftir aðeins fáeinir
roksands-hnausar á við og dreif, en þeir eyðast lika og hverfa að
lokum algjörlega. Skarðsfjall hlifir þó nokkrum hluta
sveit-arinnar, og svo hafa lika vatnsrásir nokkuð heft sandfokið.
Móhellumyndanir með grassverði hafa á landnámstíð tekið
yfir alla Jjandsveit, en undir móhellunni er hraun, og undir
þvi aftur önnur eldgömul móhella. Þar sem roksandur er

24. mynd. Jarðvegshnaus sem sandveður hafa rifið.

á sifeldri hreifingu, getur enginn gróður þrifist, en ef
sand-urinn er rokinn niður að möl, segja menn að þar só
»ör-foka« og þá fara jurtirnar aftur að vaxa og grassvörður
myndast á ný. Viða sjást þess glögg merki, að slík timabil
með sandfoki og gróðri liafa skifst á um langan aldur. A
Rangárvöllum eru undir jarðvegi afarþ^^kkar, fornar
mó-hellumyndanir, þar eru djúpar dalgrófir í móhellunni (t. d.
Skollagróf og Miðalda) og eru þær oft þurrar, en i
leysing-um renna stundum allmiklar elfur eftir þeim. I bökkum
þessara grafninga koma fram ótal móhellulög, blágrá
sand-lög og rauðleit með járnlá og ýmsum menjum eftir fornan

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0162.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free