Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Reykjanes.
207
lendið mikla og mun henni lvst með þvi. Hórað þetta
hefir fyrrum alt legið i sjó og eru þar alstaðar malarkambar
fornir undir hlíðunum með brimsorfnu grjóti og sumstaðar
sævarhellar. Litlu fyrir vestan bæinn Hjalla taka við mikil
hraun, sem haldast þvinær óslitin vestur fyrir Selvog og
taka yfir alt láglendi, hafa þau í breiðum fossum runnið
niður af heiðunum, þar er Lambafellshraun mest að austan,
en svo taka við hraun úr Selvogsheiði. Selvogur er all-
mikið fiskipláss, þó æði sé þar brimasamt og skerjótt fyrir
landi, graslendi er þar lítið en beit allgóð i heiðunum;
sandfok gjörir mikinn skaða, svo margir bæir hafa komist
i eyði. Þar er Hliðarvatn og sandrif fyrir framan og
fellur sjór inn i vatnið um ós hjá Vogsósum, en i útsynn-
ingi skefur oft sand i ósinn svo hann fyllist. Upp af vatn-
iuu eru snarbrattar hamrahliðar, 800—900 fet á hæð, og
hafa fallið fram af þeim 4 hraunfossar, tveir hjá Stakkavik
og tveir hjá Herdisarvik. Frá Geitahliðarenda og vestur að
Ogmundarhrauni er hraunlaus kafii, sem nær frá Kleifar-
vatni suður i sjó milli Sveifluháls og Lönguhliðar, en undir
eins og Sveiflidiálsi sleppir, taka við eintóm brunahraun.
Niður af Krisuvík eru björg við sjóinn og i þeim nokkur
fuglatekja. Fyrir vestan Selatanga gengur Festarfjall í
sjó fram, þar fyrir vestan er Grindavik verstöð mikil og
standa bæirnir i þorpum, þar eru hrjóstrug hraun i kring;
í Grindavik var á 17. öld verslunarstaður, en vond höfn.
Frá Grindavik eru eintóm hraun út á Reykjanestá, gigir
margir og gjár miklar, á Valahnúki stendur vitinn, þar eru
brennisteins- og leirhverir, og er Gunnuhver þeirra merk-
astur. Norður af Sandvík er Hafnarberg, þverhnýpt björg
úr sjó, en gróðrarlítil hraun alstaðar á láglendi; bygðir eru
hér víða með ströndu mjög af sér gengnar af sandroki og
lyngrifi. Vk koma Hafnir sunnan við Osa en svo Rosm-
t
hvalanes þar fyrir norðan; um Osana hverfa hin nýju
hraun og eins um Rosmhvalanes, og eru þar uppi i landi
viðast sléttir melar með isfáguðum grágrýtisklöppum hér
og hvar. Vestan á nesinu er allmikil sjómannabygð og
hverfi mörg; ströndin liggur hér fyrir opnu hafi og hefir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>