- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
208

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

•208

Landslag við Faxatióa.

sjórinn brotið mikið af henni, og fram með ströndinni eru
því ótal sker, flúðir og hólmar og fjarar langt út. Yzt á
nesinu er Garður og Leira að austanverðu, þá gengur
Hóhnsberg þverhnfpt i sjó fram inn að Keflavik; fyrir
austan Njarðvík er Yogastapi (226’) grágrýtishöfði
þver-hnýptur að sjó, en fyrir austan hann er alt hulið hraunum
inn að Hvaleyri. Undirlendið er hér viðast tveggja miina
breitt, samanhangandi hraunbreiða gömul, sem kallast einu
nafni Almenningur, hallast hraun þessi upp að
Fögru-fjöllum, Trölladyngju og Undirhliðum og hafa þau komið
úr mörgum gigum. Tvö hraun yngri hafa runnið ofan á
hinum eldri i sjó fram, Kapelluhraun milli Hvaleyrar og
Hraunsbæja, og Afstapahraun úr Trölladyngju hefir
runnið fram milii Hraunbæja og Vatnsleysu. Pessi nýrri
hraun eru mjög úfin og mosavaxin, en að öðru leyti
gróð-urlaus, eldri hraunin eru mikiu grasgefnari og í þeim er
sumstaðar dálitið skógarkjarr. I hraunum þessum er nærri
alveg vatnslaust, en allmikið vatn kemur undan þeim við
sjóinn i fjörunni t. d. við Hraunbæina, sumstaðar eru
upp-sprettur á sævarbotni. Hvergi er grasivaxið undirlendi og
alt er hraun heim að bæjum, fiskimannahverfi eða þorp eru
fram með sjónum, en engin bygð uppi i landinu.
Bygð-irnar eru Vogar, Yatnsleysuströnd og Hraun, og þá gengur
fram Hvaleyri vestan við Hafnarfjörð. Austur og suður af
Hafnarfirði er undirlendi alt, inn með
Reykjanesfjallgarð-inum, austur að Hengli og Mosfelisheiði eintómar óbygðir,
mosavaxnir hraunfiákar með fáeinum grágrýtisholtum og
móbergshnúskum innanum. Af holtunum eru ásarnir upp
af Hafnarfirði einna mestir og eru hinir hæstu þeirra 3—400
fet á hæð, þar hefir Hafnarfjarðarhraun runnið niður á
Alftanes. Svæðið norðan við þetta hraun, norður að Esju
um Mosfellsveit og út á Seltjarnarnes er öldumyndað land
með ótal holtum, ásum, melum, lægðum og hvilftum og eru
sumstaðar vötn í dældunum, þetta eru ait forn
grágrýtis-hraun, sem eru áföst við grágrýtið á Mosfeilsheiði.
Oldu-land þetta hækkar smátt og smátt upp undir Mosfelisheiði

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0222.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free