Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
240
Norðurlancl.
að ásnum. Upp af Kolbeinsdal gengur Heljardalur og þaðan
Heljardalsheiði niður i Svarfaðarclal. Jafnhliða
Kol-beinsdal ganga Deildardalur og Unadalur upp i fjöllin.
en láglendisræma er fyrir utan þá fram með sjá, og heitir
bygðin þar fram með hlíðunum Oslandshlið, en svo tekur
við Höfðaströnd. þar gengur Pórðarhöfði fram í sjó og
er Höfðavatn bak við hann. Upp af dölum þeim sem fyrr
voru nefndir eru afarháar fjailseggjar og hnúkar með
jökul-fönnum á milli. þar er Myrkárjökull syðst milli
Hörgár-dals og Hjaltadals, þá kemur Túnahryggsjökuil norður
að Heljardalsheiði, og norðvestur af honum eru Unadals
og Deildarclaisjöklar. Jöklar þessir eru margvislega
sundurskiftir af kiettahryggjum, og frá hjarninu ganga litlir
skriðjöklar niður i hina hæstu dalabotna. Annars má það
heita svo, að þetta mikla fjalilendi, með jöklum þeim sem
þar eru, sé enn ókannað. Norðan við Unaclal gengur
fjalla-rani allbreiður út á milli Skagafjarðar og Fljóta, þar er
Barnadalsfjail (237(3’). Fyrir utan Þórðarhöfða út með
ströndu eru á láglendi viða melar og leir og malarkambar
við sjó, en fjöllin fyrir ofan sundurgrafin, gróðrarlitii og
skriðurunnin, þar heitir Sléttahlið, en þegar kemur austur
fyrir fjallahornið opnast bjrgð sú, sem köliuð erFljót, þar
eru vötn stór rétt við sjó og upp frá þeim undirlendi nokkuð,
og skiftist það i Yestur- og Austur-Fljót. Upp frá
Yestur-Fljótum gengur Flókadaiur, en frá Austur-Fljótum Stifla,
einkennilegur dalur og snotur með háum fjöllum ait i kring;
þvert yfir dalmynnið er hóiagirðing 2—400 feta há, og liefir
bygðin liklega tekið nafn af þessari stifiu. Hliðardalur
r
vestan við Stíflu iieitir Tungudalur. Ur Stiflu liggur
vegur tii Olafsfjarðar um Lágheiði (1147’), það er djúpt
skarð gegnum fjöllin, sem eru mjög há beggja megin, þar
er 01 afsfjarðarfjall (3273’) að norðanverðu. Fyrir utan
Fljót eru há fjöll og brött í sjó fram, þar er
Illviðra-hnúkur (3477’); sýslutakmörk eru um Almenningsnöf og
r
þar f}Trir norðan Ulfsdalir. Til Siglufjarðar liggur úr
Fljótum stuttur en brattur fjallvegur Siglufjarðarskarð.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>