- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
267

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Fljótshverfi. Brunasandur.

267

Austan við Síðufjölliu niður með Hverfisfljóti hefir hið
nýja Brunahraun runnið, og heitir Brunasandur fyrir
neðan það. Sandurinn er samsettur af vikurdusti, og til
helminga af smárri, lábarinni möl. sem upprunalega hefir
verið árburður úr Hverfisfijóti, þvi það kvíslaðist um
sand-inn fyrir gosið 1783. Par gat þá enginn gróður þrifist og
þar var enginn bær, en þegar hraunið kom rak það fijótið
til austurs, og siðan sandurinn losnaði við ágang
jökulkvisl-anna, hefir hann stórlega gróið upp, svo hann er orðinn
nærri allur eintóm grasbreiða,. og þar eru nú 5 eða 6 bæir.
Undan hraunröndinni renna margir lækir og safnast þeir
saman i stóra gljá eða lón neðst á sandinum, uppistöðuvatn
þetta stendur i sambandi við næstu fljót og hefir útrensli
um Hvalsiki, Veiðiós og Skaftárós. Neðst á Brunasandi,
þar sem gljáin nú er, var til forna bygð og melland mikið,
sem hét Skjaldbreið, um þá sveit hafa menn aðeins óljósar
sögur’).

Bygðin austan frá Hverfisfljóti vestur að Asavatni undir
heiðarbrúninni og sumstaðar uppi á henni er kölluð Siða,
en fyrir sunnan Skaftá er Landbrot og Meðalland.
Austur-Siðan er mjög fögur, móbergsfjalla-brúnir margvislega
lagaðar takmarka láglendið að ofan og grængresið
saman-hangandi nær upp hliðarnar upp að hömrum; viða falla
fossar og lækjarbunur fram af brúnunum, en fyrir neðan
er viðáttumikið graslendi og grænir balar kringum bæina,
sem standa i smáþorpum undir hliðinni. Yflrleitt er hér
alstaðar mikill gróður bæði á slóttlendi og fjöllum, þar sem
hann fær að njóta sin fyrir vötnum. Upp með Geirlandsá
skerst dalur upp i hálendisröndina, en þar fyrir neðan, á
nesi. sem myndast af Stjórn, Breiðbalakvísl og Skaftá, er
Stjórnarsandur. Frá Kirkjubæ, 2’ 2 milu til vesturs,
rennur Skaftá stöðugt austur með hliðinni, en fyrir neðan
hana eru eintóm hraun. Fyrir gosið mikla 1783, sem mjög
breytti þessum héruðum, rann Skaftá fjær hliðinni, og
undir henni stóð röð af bæjum einsog á Austur-Síðu, en er

’) f\ Th. í Andvara XIX. 1894 bls. 130-131.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0281.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free