- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Fyrsta bindi /
309

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

fjórsá.

309

fyrir norðvestan Keldur. Fyrrum, fi-am á 18. öld,
sam-einuðust Rangárnar niður af Odda og hét aðaláhi Hólsá
til sævar, ÍVerá var þá örlitil og rann i Eystri-Rangá, en
siðan tryltist hún og belgdist svo upp að hún varð aðaláin,
sem fyr var sagt. Hin fyrri aðalá, Rangá (eða Hólsá), féll
til forna beint til sævar fyrir vestan Landeyjar lun
sér-stakan ós, sem hét Rangárós, en sandurinn Rangársandur.
I landnámstið hefir ósinn verið djúpur, því þar lentu menn
oft skipum sinum.1) Niður Holtin renna til suðvesturs tvær
ár eða lækir með allmiklu vatni um grösugar og breiðar
lægðir er skiljast af hrygg, sem kallaður er Asar. Hinn
eystri lækurinn heitir Rauðalækur, á honum eru margir
krókar og hlykkir, i hann fellur Pverlækur úr Hrútsvatni
og siðan heitir hann Andalækur og fellur niður i
Frakka-vatn. afrensli þess vatns niður i Djúpós- og
Háfsós-farveg-inn er kallað Kálfalækur. Hinn vestri lækurinn heitir
Steinslækur og rennur hann i Pjórsá rétt fyrir ofan
Sand-hólaferju.

Pjórsá er hið lengsta fijót á Islandi og eitt hið
vatns-mesta, eftir þvi sem næst verður komist mun hún vera
ná-lægt 28 milum á lengd. Þjórsá sprettur upp i mörgum
kvislum undan Hofsjökli austanverðum. Nyrzta kvislin
kemur undan skriðjökli sunnan við norðausturhorn
Hofs-jökuls; fyrir neðan hann er einstakur tindur, sem heitir
Klakkur og fyrir sunnan hann kemur kvislin fram.
Berg-vatnskvisl kemur i fjórsá þar efra norðan af sandi, og
renna kvíslar þessar saman i Fjórðungakvisl, hún kemur
undan Tungnafellsjökli i þrennu lagi. Auk þess falla i
Þjórsá að austan Hreysiskvísl, Ey vindarkvísl
ogPúfu-verskvisl, en að vestanverðu rennur fjöldi jökulkvisla i
ána beggja megin við Arnarfell, og eru þar víða sandbleytur.
eru þær einu nafni kallaðar Arnarfellskvislar,
ogMúla-kvislar þær syðstu af þeim. Yfir þessar kvíslar verða
þeir að ríða, sem fara Ai-narfellsveg, en tiðara er að riða

’) Pegar Ketill hængur landnámsmaður lenti þar skipi sínu segir
Egla (Rvík. 1892. Kap. 23, bls. 57) „Rangá féll þá miklu þröngra ok
var djúpari enn nú er."

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/1/0323.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free