- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
156

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

156 EldfjölL.

verið minni. Pað er eigi alveg ósennilegt að hér hafi gosið
á landnámstið, þvi i Landnámu er talað um hlaup úr Hvei’fis-

r

fijóti, sem til forna hét Almannafljót, þarstendur: »Aðr
Al-mannafljót leypi var þat kallat Raptalækr«; en hlaup það
hefir liklega orsakast af eldgosi1). Fjallið Laki, sem stendur
i miðri gigaröðinni, er úr móbergi og 2719 fet á hæð og
gengur gígaröðin upp i fjallið bæði að norðan og sunnan;
glögg eldsprunga sést þar yfir fjallið þvert og samtengir
hún syðri og nyrðri gigana, þrjár eða fjórar aðrar minni
sprungur eru jafnhliða aðalsprungunni og hafa stórar spildur
af fjallinu sokkið milli þeirra nokkur fet. Ur einni af
smá-sprungunum hafa utan i fjallinu að norðanverðu runnið
ör-litlar hraunlænur niður i hliðina, án gigamyndunar, en niður
i kvos, nokkru ofar, hefir úr aðalsprungmini gubbast
hraun-spýja, 2—3 dagsláttur á stærð.

A. Helland.

85. mynd. Lítill kafli af eldgígaröðinni á Síðumannaafrétti,

sem gaus 1783.

r

Ur gigaröðinni hafa mikil hraunfióð ollið á báðar hliðar
og hallast hraunin upp að gigunum, sem þannig standa á
mjóum hrygg, með litlum halla beggja megin. Uppi á
afréttinum breiðist hraunflóðið út á milli Fögrufjalla og
Ulfarsdalsskerja að vestanverðu, og Blængs, og
fellaraðar-innar þar suður af, til austurs, og er viða U/2 mila á breidd,

r

sumstaðar þó aðeins :/2~l míla. Ur þessum hraunsjó hafa
tvær kvislir runnið til suðurs. Hin vestri kvislin rann niður
Skaftárgljúfur og breiddist um nokkurn hluta af Meðallandi
og Landbroti. og er hraunið þeim megin nærri 12 milur á
lengd frá jökli og niður að Eldvatni i Meðallandi, en er 3
mílur á breidd, þar sem breiðast er, fyrir neðan Vestur-Siðu.

’) Andvari XIX. 1894, bls. 127.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0168.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free