Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Hverir og laugar.
211
(ieysi er vanalega 84 — 88 °/o, frá Baðstofuhver 91 °/o. frá
Skriflu 88 °/o, en annars getur samsetningin eðlilega verið
nokkrum breytingum undirorpin. jafnvel hjá sama hver, og
kisilsýru-innihaldið verið frá 75 ° o til 98 °/o. Geysir hefir
bygt undir sig reglulega hverahrúðursstrftu með flatri skál
og beinni pipu niður úr, en slikt sést eigi hjá neiniun
öðrum hver á Islandi svo fagurlega lagað; oft eru
hvera-opin mjög ólöguleg, og er ekki hægt að gefa neina algilda
reglu um myndun þeirra og útlit.
Jurtagróður er oftast mikill kringum laugar og hveri,
þar sem hinar volgu gufur sifelt hjúpast um jarðveginn, en
fast við stóra goshveri geta eðlilega blómjurtir eigi þróast,
þar sem sjóðandi vatn svo oft flóir yflr. Gróðrarlagið er
oftast einkennilegt kringum hveri og laugar, og jurtirnar
vanalega stórvaxnar. Algengastar jurtir á þessum stöðum
eru mura, mýradúnurt, skarififill. smári, fjandafæla, skurfa,
krækill, græðisúrur. oft mjög stórar, blákollur, sef (Jtmciis
bufonius og J. lamprocarpus), nykra o. fl. og við suma hveri
vex mikið af efjugrasi (Limosella aqaatica). Nokkrar jurtir
vaxa eingöngu við hveri t. d. vatnsnafli (Hydrocotyle
vul-garis), stóra græðisúra (Plantago major), flóajurt (Polygonum
persicaria), grámygla (Gnaphalium idiginosum) og laugabrúða
(Callitriche stagnalis). Fram með lauga- og hveralækjum
vex viða mikið af mosum og siunar tegundir hvergi
annar-staðar, alls þekkjast á Islandi 14 tegundir mosa, sem halda
sig eingöngu við volgan jarðveg1). í laugalækjum er oft
mjög mikið af blágrænum þörum, oft i þykkum og
saman-hangandi slýskánum. og þroskast bezt þar sem hitinn er 30
—45° C., en viða er lika nokkur þaragróður i heitara vatni,
alt upp að 60—70° hita. Sumstaðar er þaragróðurinn
sam-vaxinn við kisilagnir og kisilskánir og myndar allskonar
J) F. M. Liebmann: De islandske varme Kilders Vegetation
(For-bandiinger ved de skandinaviske Naturforskeres 2. Mode. Kbbvn. 1841,
bls. 336—340). Helgi Jónsson: Vaar- og Hest-Exkursioner i Island 1897
(Botanisk Tidskrift 21. Bind. 1898, bls. 356—358). C. Ostenfeld:
Skil-dringer af Vegetationen i Island (Botanisk Tidskrift 22. Bind. 1899,
bls. 229—245).
14*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>