- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / Annað bindi /
223

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Reykholtsdalur.

223

alkunni Arhver (eða Yellineshver). Pessi hver kemur
uppúr skeri i miðri ánni og er skerið tilsyndar einsog
gufu-skip eða blásandi hvalur. Skerið er úr hörðnuðum leir,
4—5 álnir á hæð og sprunga eftir þvi endilöngu og á henni
hverirnir, 4 að tölu, nyrzti hverinn gýs mest 5—6 fet, þar
næst er mjög djúpt op, svo aflaugt gat með 78° hita og
syðst kringlótt gat með 96° hita; fvrir neðan nyrzta
hver-inn að vestanverðu, rétt niður við á, er hverhola, sem spýtir
út i ána. Yeturinn eftir jarðskjálftana 1896 gaus Arhver
miklu hærra en hann var vanur, 30—35 fet í loft upp.
Rétt hjá Reykholti er hverinn Skrifia, hversopið er
all-stórt, IU/2 fet að þvermáli, með miklu vatnsmegni og 97°
hita, Skrilia gvs aðeins 2—3 feta hátt; hverahrúður sest því
nær enginn úr vatninu. Ur Skriliu er heita vatninu veitt í
Snorralaug um 177 álna langan stokk, sem er mestallur
neðan jarðar, en aðeins opinn á dálitlu svæði næst Skrifiu.
Snorralaug er rétt hjá bænum i Reykholti. norðaustan
undir dálitlum hól, hún er kringlótt og 61/* álnir að
þver-máli; laugin er vel og vandlega hlaðin upp úr höggnum
hverahrúðursstemum og helliu’ i botninum, hún er nærri 2
álnir á dýpt og fram með veggjunum er bekkur eða brik.
Par sem vatnið úr stokknum rennur i laugina, er hiti þess
64°, en það hefir verið látið kólna nokkra stund, áður menn
böðuðu sig í þvi. Yatninu var hleypt úr lauginni gegn um
koparpipu, sem rétt við botninn gengur út i fráveizlustokk;
niður i laugina eru 4 steinþrep. Það eru munnmæli, að
Snorri Sturluson hafi átt að byggja laugina, en enga vissu
hafa menn fyrir þvi. Skamt fyrir sunnan Skriflu er hver,
sem heitir Dynkur; Eggert Olafsson getur þess, að nýr
hver hafi myndast nærri Skriflu við jarðskjálfta 1749, hvort
það hefir verið Dynkur eða eitthvert annað hveraop er óvist.
Sunnan ár eru i R-eykholtsdal, auk hveranna við
Klepp-holtsreyki, lika hverir við Snældubeinsstaði,
Kópa-reyki og Hægindakot, sem allir gjósa dálitið; við
Úlfs-staði fyrir austan Reykholt er laug og mikið af
hvera-hrúðri, og halda menn, að hrúðurhellurnar i Snorralaug
hafi verið fluttar þaðan.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:17:57 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/2/0235.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free