Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Sinokkliskar. 561
fiskmiðum syðra i maimánuði; gottiminn stendur yfir frá þvi
i april þangað til i miðjum júni; langan lifir á fiskum,
sér-staklega spærlingi. Langan er 30—68 þuml. á lengd, hún
er mikið fiskuð við Island, einkum við Vestmannaeyjar,
og er söltuð og seld til útlanda einsog þorskur. Blálanga
(Mólva byrlíelange) er nokkuð algengur djúpfiskur fyrir
sunnan land, frá Ingólfshöfða vestur á Breiðafjörð, á 70—
500 faðma dýpi, hún hrygnir á þessum stöðvum nokkuð fyr
en langan, frá þvi i april til í mai. Blálangan (32—50 þuml.)
hefir stundum veiðst frá Snæfellsnesi í Kolluál og er þar
kölluð mjóni. Tvær tegundir af kyninu Phycis hafa fundist
á djúpum sjó við Vestmannaeyjar og í Faxaflóa suður af
Snæfellsnesi, en eru sjaldgæfar; djúpfiskurinn Haloporphyrus
eques er nokkuð algengur fyrir sunnan land á 200—500
faðma dýpi. Keilubróðir (Motella mustela) hefir fengist við
Suðúrland nokkrum sinnum og lifir vist helzt i
þaraskóg-um á 20—40 faðma dýpi. Blákjafta (MotelJa cimbria) lifir
á strjálingi kriugum alt land og finst oft i þorskmögum á
40—80 faðma dýpi. Keilan (Brosmius brosme) er mjög
al-geng við Island, mest veiðist af henni fyrir sunnan og
vest-an, lítið norðantil við Vestfirði og við Norðurland og minst
við Austfirði. Keilan er djúpfiskur, mest á 100—500 faðma
dýpi, hinar yngri keilur ganga grynnra og veiðast jafnvel
á 30—40 föðmum, helzt á grjótbotni. Keilurnar eru við
Is-land 15—35 þuml. á lengd; aðalfæða þeirra eru krabbadýr,
þær hrygna á vorin fyrir sunnan land og hafa hrogn þeirra
og seiði fundist langt frá landi í rúmsjó. Keilur veiðast á
Suðurlandi við og við árið um kring og eru etnar nýjar
eða saltaðar. Af trönusilum eða sandsílum eru til tvær
tegundir: Ammodytes Janceolatus og A. lancea. Sili þessi eru
mjög algeng við Suðvesturland árið um kring, oft
ógur-legur grúi af þeim bæði á fiskimiðum og uppi við ströndu;
þau virðast leggjast nokkuð frá landi á vetrarmánuðum, en
flest er af þeim á sumrin frá því i mai til september; nyrðra
og eystra er lika mikið af sílum þessum, þó líklega ekki á
vetrum, þau gjóta kringum landið og mikið af ungseiðum
þeirra hefir á sumrum fundist fyrir Vestfjörðum. Trönu-
36
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>