Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
562
Fiskai-.
sílin eru notuð i beitu og hafa mikla þýðingu sem aðalfæða
flestra hinna helztu matfiska. Porskar og isur eta mjög
mikið af silum þessum og elta torfur þeirra, einnig eru þau
fæða fyrir flyðrur, kola, ufsa, sild og skötur; sjálf lifa silin
mestmegnis á smákröbbum. Djúpsævarfiskurinn
Coryphœ-noides rupestris rak einu sinni á Landeyjasandi og svo hefir
hann veiðst frá rannsóknaskipinu »Thor« á 270 og 509
faðma dýpi fyrir sunnan Vestmannaeyjar; ennfremur hefir
Macrurus Fabricii nýlega fengist á Islandi, i Eyjafirði, i
júni-lok 1910, það er líka djúpfiskur, sem lifir á 150—300 faðma
dýpi við Finnmörku og Grænland.x)
H. Krðyer.
185. mynd. Trönusíli (Ammodytes).
Flyðrur (Hippoglossus vulgaris) eru algengar kringum
Island, þó mun vera mest af þeim fyrir sunnan og vestan,
þær halda sig bæði á grunnum sjó og miklu dýpi; stórar
og fullorðnar flyðrur eru þó algengastar i djúpum sjó og
almennar eru þær fyrir sunnan land á 200—400 föðmum.
Xærri landi halda flyðrur sig oft i straumum og röstum,
t. d. við Yestmannaeyjar, i Reykjanesröst og í ýmsum
röst-um á Vestfjörðum og á Breiðafirði. Flyðrmmar flytja sig
oft töluvert á mararbotni og á Norður- og Austurlandi
hverfa þær á vetrum af grunnsævi. Flyðrur geta orðið
mjög stórar, 6—8 fet á lengd og jafnvel stærri; þær lifa
mest á fiski, isu, löngu, sandsilum, karfa og þorski og
eta einnig krabbadýr. Flyðrurnar hrygna aðeins í volga
sjónum við Suðurland á fyrstu mánuðum ársins, liklega á
miklu dýpi, annars er mönnum enn ókunnugt æxlunareðli
þeirra að ýmsu leyti.2) Smálúður eru algengar á sumrin
M Skýrsla náttúrufræðisfél. 1911, bis. 33-34
*) Andvari 1908, bls. 126-127.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>