Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Bæjaskipun
21
ástæðum, sumar verið svo niðurníddar af aumingjum og
ónytjungum, að enginn hefir fengist til að búa á þeim.
Af eldgosum hafa oft margar jarðir og stundum heilar
sveitir ve’rið óbyggilegar í nokkur ár, en svo hafa þær
bygst allar aftur, er frá leið; tún og hagar náðu sér, er
askan sökk niður i jarðveginn. Svo hefir verið um marga
bæi í Skaftártungu eftir Kötlugos, allmarga bæi á
Suður-landsundirlendi eftir Heklugos, bæi á Siðu og i Fljótshverfi
eftir Skaftárgosin 1783 og bæi á Jökuldal eftir Oskjugosið
1875. Mesti fjöldi jarða lagðist i eyði í Móðuharðindunum
um stuttan tima, það var t. d. talið að 1784 hefðu 315
jarðir verið komnar í auðn á Norðurlandi.1) Pað eru
sór-stök fyrirbrigði hinnar 20. aldar, að góðar jarðir hafa lagst
i eyði af peningabralli og fóglæfrum, verið virtar og
veð-settar svo hátt í bönkum, að ómögulegt var að byggja þær
með svo háum leigumála, að hann gæti borgað vexti af
lánum. sem i þeim stóðu.
Pó nú megin bygðarinnar á Islandi hafi verið stöðugt
siðan á landnámstíð. bæir og jarðir hinar sömu, þá er það
þó allmikill hluti bygðanna, sem hefir verið mjög óstöðugur
og sífeldum breytingum undirorpinn. Petta sést bezt á
hinum ógurlega grúa eyðijarða, sem dreifðar eru um alt
land hátt og lágt. þó flestar séu langt frá sjó, sem fyrr
gátum vér. Jarðabók Arna Magnússonar telur 1702 — 1712
2.900 eyðijarðir í öllum sýslum, nema Múla- og
Skaftafells-sýslum, jarðabók þeirra sýsla er týnd; hafa þá að minsta
r
kosti verið um 3,200 eyðijarðir á öllu landinu. Olafur
r
Olavius telur i Múlasýslum 176 eyðijarðir, en i
Skaftafells-sýslum telur Sveinn Pálssou 127 eyðijarðir, og er það ef-
r __r r
laust of lítið. I Ferðabók Olafs Olavius’ar eru skrár yfir
eyðijarðir á Norðurlandi og i Isafjarðar- og Múlasýslum
1775 —1777 og töldust honum i þeim 8 sýslum, er hann fór
yfir, alls 656 eyðijarðir. Arið 1760 lágu undir Skálholtsstól
459 býli og 149 eyðijarðir og undir Hólastól 379 býli og
l) Gl. Félagsrit VII, bls. 121.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>